Völlurinn: Mark Gylfa krufið til mergjar

Gylfi Þór Sigurðsson skoraði eina markið í 1:0-sigri Everton gegn Sheffield United á laugardaginn.

Gylfi tók þá gott hlaup inn í teig og lagði boltann laglega framhjá Aaron Ramsdale í marki Sheffield Utd.

Í Vellinum í gærkvöldi krufðu þeir Tómas Þór Þórðarson, ritstjóri enska boltans á Símanum Sport, Bjarni Þór Viðarsson og Gylfi Einarsson markið til mergjar og hrósuðu Gylfa Þór fyrir góða leikgreind í aðdraganda þess.

Í meðfylgjandi myndskeiði má sjá þá fara ítarlega yfir markið.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert