Sýn kaupir sýningarrétt á Formúlu 1 kappakstrinum

Sýningar frá Formúlu 1 færast yfir á Sýn á næsta …
Sýningar frá Formúlu 1 færast yfir á Sýn á næsta ári.

Sjónvarpsstöðin Sýn hefur tryggt sér sýningarréttinn á Formúlu 1 kappakstrinum. Sýningarrétturinn er til þriggja ára og tekur gildi frá og með mótaröðinni sem hefst í ársbyrjun 2008 og stendur til loka ársins 2010. Útsendingar frá keppnunum og tímatöku verða í opinni dagskrá.

Fram kemur í tilkynningu frá Sýn, að með tilkomu Formúlunnar á Sýn verði allri umgjörð keppninnar, æfingum, baksviði og öðrum fréttum gerð mun betri skil en áður hafi tíðkast hér á landi. Þá sé stefnt að því að bjóða upp á öfluga sjálfstæða dagskrárgerð í tengslum við Formúluna, meðal annars beint frá mótsstöðum.

Þessi nýja þáttagerð verður sérstök þjónusta við áskrifendur Sýnar, en útsendingar frá keppnunum sjálfum og tímatöku verða í opinni dagskrá.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert