Engin frumsýning hjá McLaren 2008

Silfurörvar McLaren 2008 mæta til leiks í kyrrþey.
Silfurörvar McLaren 2008 mæta til leiks í kyrrþey. ap

McLaren-liðið hyggst ekki frumsýna keppnisbíl sinn fyrir næsta ár með athöfn eins og venjulega. Er það afleiðing þeirrar auðmýkingar sem liðið hefur orðið fyrir vegna njósnamálsins.

Í byrjun yfirstandandi árs var 2007-bílnum ýtt úr vör með kostnaðarsamri athöfn að kvöldlagi á götum borgarinnar Valencia á Spáni.

Annað verður uppi á teningnum fyrir næstu vertíð. Í annarri viku janúar verður McLarenliðið við einkaæfingar í Jerez-brautinni á Spáni. Við það tækifæri verður bílnum frumekið. Í framhaldi af því verður myndum af bílnum og fleiri upplýsingum um hann dreift til fjölmiðla, meira verður það ekki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert