Kristján Einar bætir tíma sinn á æfingum í Nýja-Sjálandi

Kristján Einar á fullri ferð á æfngu í nótt. stækka

Kristján Einar á fullri ferð á æfngu í nótt.

Kristján Einar Kristjánsson, Íslandsmeistari í gokarti, hefur staðið sig vel á þeim æfingum sem hann hefur farið á í Nýja-Sjálandi þar sem hann er nú við lokaundirbúning fyrir keppni í Toyota Racing Series International Trophy, TRS-mótaröðinni í kappakstri sem stendur yfir frá 5. til 20. janúar.


TRS markar upphaf kappakstursferils Kristjáns Einars á
alþjóðavettvangi. Hann hefur verið í stífum æfingum hjá breska
meistaraliðinu Carlin Motorsport frá liðnu sumri. Þangað fór
hann upphaflega með það að markmiði að keppa í Formúlu BMW
sem er svokölluð byrjunarformúla. Fyrstu prófanir þóttu hins vegar
sýna frammistöðu og aksturshæfni sem opnaði honum tækifæri til
prófana og æfinga á mun öflugri formúlubílum.

Kristján Einar bætti í nótt tíma sinn á Ruapuna brautinni um 2 sekúndur frá því nóttina áður og viðrist lofa góðu fyrir keppnina þar um helgina, sem verður hans fyrsta í alþjóðlegum kappakstri.

Besti hringur hans í nótt var á 1:23,3 og var hann þokkalega sáttur með það.  „Þetta þykir ágætistími í þessari braut, en ég á samt rúmar tvær sekúndur í bestu menn - og þeir eru nokkuð margir í hópnum! Þetta er öflugur hópur sem keppir hér og má nefna að hér eru til dæmis margfaldir meistarar úr A1GP og Champ Car eins og Matt Halliday og Daniel Gaunt . Brautarmetið frá árinu 2005, sem talið var að myndi standa óhaggað, féll strax á fyrstu æfingu í gær,“ sagði Kristján Einar eftir æfingarnar.

Heimasíða Toyotaformúlunnar í Nýja-Sjálandi

Fjallað um Kristján Einar á heimasíðu TRS-formúlunnar

Um keppnisferil Kristjáns Einars á heimasíðu Toyota-formúlunnar

Kristján Einar á bíl sínum í Nýja-Sjálandi.

Kristján Einar á bíl sínum í Nýja-Sjálandi.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is