Gunnlaugur ráðinn umsjónarmaður útsendinga Sýnar

Gunnlaugur fer með formúlunni af RÚV yfir á Sýn. Hér ræðir hann við Frank Williams, ...

Gunnlaugur fer með formúlunni af RÚV yfir á Sýn. Hér ræðir hann við Frank Williams, aðaleiganda Williamsliðsins. mbl.is/rúv

Sjónvarpsstöðin Sýn hefur ráðið Gunnlaug Rögnvaldsson sem umsjónarmann útsendinga sinna frá formúlu-1, en stöðin tekur í ár við útsendingum frá íþróttinni af ríkissjónvarpinu.

Í fréttatilkynningu frá Sýn segir að stöðin hyggist stórefla umfjöllunina um formúluna sem hafi á liðnum árum áunnið sér sess sem eitt allra vinsælasta íþróttaefni í íslensku sjónvarpi.

„Ég er mjög spenntur á að takast á við nýjan starfsvettvang og að geta víkkað umfjöllun um formúlu-1 til muna. Það verða margar spennandi nýjungar á Sýn, sem verið er að leggja grunn að þessa dagana", sagði Gunnlaugur um ráðninguna.

„Ég hef gengið með ýmsar hugmyndir í maganum sem ekki hefur verið hægt að útfæra til þessa á Íslandi, en það er hugur í Sýnar-mönnum. Við munum heimsækja ökumenn, lið og mótsstaði á árinu og kynda hressilega undir byrjun tímabilsins með þáttum um undirbúning keppnisliða fyrir tímabilið. Taka púlsinn og vera á staðnum.

Þá stendur til að virkja áhorfendur meira í umfjöllun um formúlu-1 og skapa stemmningu þar að lútandi um land allt með gestum í sjónvarpssal, viðtölum úti á landi og leikjum ýmis konar, fyrir áhorfendur á öllum aldri,“ segir Gunnlaugur.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Í gær

Þriðjudaginn 21. febrúar

Mánudaginn 20. febrúar

Sunnudaginn 19. febrúar

Laugardaginn 18. febrúar

Miðvikudaginn 15. febrúar

Þriðjudaginn 14. febrúar

Mánudaginn 13. febrúar

Sunnudaginn 12. febrúar

Laugardaginn 11. febrúar

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar


finnur.is