Kristján Einar sótti á í tímatökunum

Unnið við bíl Kristjáns Einars í bílskúr TripleX-liðsins. stækka

Unnið við bíl Kristjáns Einars í bílskúr TripleX-liðsins. mbl.is/toyota

Kristján Einar Kristjánsson stóð sig vel í tímatökum fyrsta kappaksturs hans í Toyota-formúlunni sem fram fer í Nýja-Sjálandi. Bætti hann tíma sinn mjög í seinni tímatökunni og hefja tveir keppendur seinni kappakstur morgundagsins á eftir honum, þar á meðal meistari lafði Wigram-mótanna.

Kristján Einar náði sér mun betur upp í seinni tímatökunni. Í þeirri fyrri varð hann í 18. og neðsta sæti og 2,3 sekúndum frá tíma þess fyrsta. Hefur því fyrri keppni morgundagsins í því sæti, en mótið fer fram í Ruapuna, skammt frá borginni Christchurch.

Seinni kappaksturinn hefur hann hins vegar í 16. sæti. Í seinni tímatökunni ók hann hringinn 0,7 sekúndum hraðar en í fyrra tilvikinu og var aðeins 1,9 sek. frá besta tíma, sem teljast verður gott í fyrstu formúlukeppni hans. Í seinni umferðinni var hann og fljótari að setja sinn besta tíma, eða á sjöunda hring en á þeim tíunda í fyrri umferðinni.

Í þriðja kappakstrinum, keppninni um lagði Wigram styttuna, ræsir Kristján Einar einnig í 16. sæti þar sem fyrir það mót gildir meðaltími úr tímatökunum tveimur.

Bílarnir nota eldsneyti sem unnið er úr mysu

Hörð keppni var um efstu sæti í tímatökunum báðum en hraðast ók einn yngsti keppandinn, heimamaður að nafni Earl Bamber. Meistari raðarinnar, Daniel Gaunt, var dæmdur úr leik í seinni umferðinni fyrir að vera á of léttum bíl. Hann mun hefja keppni beint fyrir aftan Kristján Einar í öðru og þriðja mótinu.

Það er athyglisvert við Toyota-formúluna í ár að hún telst vistvæn þar sem bílarnir eru knúnir lífrænu E85-eldsneyti sem unnið er úr mysu. Með móti helgarinnar hefst akstursíþróttasumarið hjá andfætlingum okkar á Nýja-Sjálandi. Eftir mótið við Christchurch leggja ökumennirnir leið sína til Norður Palmerston og keppa þar um næstu helgi. Þriðja keppnishelgin í röð fer svo fram í bænum Taupo.

Niðurstaðan varð sem hér segir í tímatökunum í Ruapuna
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is