Kristján Einar besti nýliðinn í fyrsta kappakstri
Kristján Einar Kristjánsson var besti nýliðinn í fyrstu keppni Toyota-formúlunnar í Nýja Sjálandi sl. nótt að íslenskum tíma. Hann varð í 15. sæti af 18 keppendum í fyrstu kappakstrinum, en síðan 14. í heildina eftir þrjár keppnir.
Stígandi hefur verið í frammistöðu hans á æfingum og í nótt kórónaði hann það með góðum árangri í jómfrúrkeppni sinni í formúlukappakstri.
Í öðrum kappakstrinum af þremur varð Kristján Einar fyrir því að drepa á bílnum í ræsingunni en eftir að bætt hafði verið úr því varð hann 13. á mark.
Í fyrstu tveimur keppnunum voru eknir 12 hringir en 25 í síðasta kappakstrinum. Hann lenti aftur í erfiðleikum í ræsingu þriðja kappakstursins en náði að halda vélinni gangandi og lauk keppninni um lafði Wigram styttuna í 14. sæti af 18 bílum.
Má því segja að Kristján Einar hafi með því staðið sig með glæsibrag á sinni fyrstu helgi í alþjóðlegum kappakstri. Voru aðstoðarmenn hans hjá TripleX-liðinu afar ánægðir með frammistöðu hans.
Úrslitin á fyrstu keppnishelgi Kristjáns Einars í Nýja-Sjálandi







