Tæknistjóri lofar færni Kristjáns Einars
Kristján Einar hefur reynda tæknimenn sér til aðstoðar. Hér gera þeir bíl hans klárann fyrir fyrstu keppni. mbl.is/toyota
Ogle er sagður kröfuharður enda vanur því besta hjá Carlin-liðinu sem er með þeim fremri í formúlu-3 í Bretlandi og GP2-kappakstri. Hann hefur m.a. unnið með Lewis Hamilton á undanförnum árum. Er hann einn af þremur aðal tæknistjórum liðsins.
Leiðir þeirra Kristjáns Einars lágu fyrst saman á formúlu-bmw æfingum í haust og eitthvað sá hann í strák því Ogle tilkynnti stjórnendum liðsins eftir fyrstu æfingadagana að þetta væri sá ökumaður sem hann vildi stýra 2008.
„Það er einungis hægt að lýsa keppnishelginni í Ruapuna sem fullkominni. Kristján Einar lauk líkast til fleiri hringjum en nokkur annar ökumaður um helgina sem er að þakka skynsamlegri og yfirvegaðri afstöðu hans.
Hann var örlítið áttavilltur fyrsta daginn og velti því fyrir sér hvort hann myndi nokkru sinni brúa fimm sekúndna bil. „Ég skil ekki hvernig ég get ekið hraðar,“ sagði hann. Þarna sagði ekkert annað en reynsluleysi til sín en með mikilli vinnu af hálfu okkar beggja fundum við leið til að brúa bilið og með hverri æfingu fundum við meiri hraða uns bilið í hinn mjög svo reynda og hraðskreiða stjörnuökuþór Matt Halliday, sem er liðsfélagi Kristjáns.
Framfarir Kristjáns Einars um helgina voru óvenjulega miklar. Það er mjög gefandi fyrir verkfræðing að vinna með ökuþór sem hlustar af athygli á það sem maður hefur fram að færa og yfirfærir þau ráð yfir í bílinn og skilar því í betri brautartíma.
Styrkur Kristjáns Einars er tvímælalaust viljinn til að hlusta á sér reyndari menn og nýta ráð þeirra í bílnum og úti á brautinni. Því til viðbótar er frábærlega yfirveguð einbeitni og jafnvægi í bílnum undir álagi. Þeir hæfileikar eru ekki síður mikilvægir til árangurs en aksturshæfileikar hans. Í fyrsta alvörumóti hans í kappakstursbíl hefur það opinberast rækilega fyrir mér að mjög svo mjúkur akstursstíll Kristjáns Einars svipar mjög til tækni Jenson Button eða Alvaro Parente.
Er við beinum sjónum okkar að næsta móti, nýsjálenska grand-prix mótinu í Manfield, hefur markmiðum okkar fleytt hraðar fram en við bjuggumst við. Takmarkið nú er að komast í keppnina í miðjum hóp fremur en að draga á miklu reyndari og tiltölulega hraðskreiða menn í lokasætunum. Við vitum hvað þarf til þess og erum staðráðnir í að gera allt sem þarf,“ segir Matt Ogle um Kristján Einar eftir jómfrúarkeppni hans í formúlukappakstri.






