Íslenskir formúluökuþórar mætast í brautinni
Viktor Þór á leið til sigurs í formúlu-3 í Snetterton í Englandi. mbl.is/jamesbearne
Kristján Einar Kristjánsson, Íslandsmeistari í karti, stóð sig vel í fyrsta kappakstrinum sínum í formúlu og voru forráðamenn Carlin-liðsins sem hann æfir og keppir fyrir hæstánægðir með framgöngu hans. Næsta mót er um komandi helgi og síðan lýkur ferð hans til Nýja-Sjálands um helgina þar á eftir.
Kristján Einar, sem hélt upp á 19 ára afmælið sitt á þriðjudaginn, fékk mjög góða dóma hjá starfsliði Carlin eftir sína fyrstu keppni. Tæknistjórinn hans, Matt Ogle, er sagður gríðarlega körfuharður enda vanur því besta hjá liðinu, en Carlin er meðal fremstu liða í Formúlu-3 í Bretlandi og eins í GP2-kappakstrinum og hefur meðal annars unnið með Lewis Hamilton á undanförnum árum. Ogle er einn af þremur aðaltæknistjórum liðsins en hann skýrði stjórnendum liðsins að Kristján Einar væri sá ökumaður sem hann vildi stýra á þessu ári. Þetta gerði hann eftir að hafa séð Kristján Einar reyna sig á formúlu-bmw æfingum í haust.
„Það er einungis hægt að lýsa keppnishelginni hjá honum sem fullkominni. Hann lauk líkast til fleiri hringjum en nokkur annar ökumaður og því er að þakka skynsamlegri og yfirvegaðri afstöðu hans,“ sagði Ogle eftir kappaksturinn í Ruapuna-brautinni á Nýja-Sjálandi um síðustu helgi.
Óvenjulega miklar framfarir
„Framfarir Kristjáns Einars um helgina voru óvenjulega miklar og það er mjög gefandi fyrir verkfræðing að vinna með ökuþór sem hlustar af athygli á það sem maður hefur fram að færa og yfirfæri þau ráð yfir í bílinn og skilar því í betri tíma í brautinni. Þetta er tvímælalaust styrkur hjá honum jafnframt því að hann er mjög yfirvegaður undir álagi sem er mikilvægt. Þeir hæfileikar eru ekki síður mikilvægir til árangurs en aksturshæfileikar hans. Hann sannaði fyrir mér í þessu fyrsta alvörumóti sínu í kappakstursbíl að mjög svo mjúkum akstursstíl hans svipar til tækni manna eins Jenson Buttons og Alvaro Parente,“ sagði Ogle ánægður með árangur Kristjáns Einars.Næsta mót hjá honum er einnig á Nýja-Sjálandi, en um helgina keppir hann í Manfeild-brautinni í Palmerston North. Þetta er önnur umferðin í Toyota-formúlunni og er hún hápunkturinn því þar verður keppt um New Zealand Grand Prix-bikarinn.
„Markmiðum okkar hefur fleygt hraðar fram en við bjuggumst við. Takmarkið fyrir mótið um helgina er að komast í keppnina í miðjum hópi keppenda, okkur finnst það vænlegra en að reyna að draga á miklu reyndari og tiltölulega hraðskreiðari menn í lokasætunum,“ sagði Ogle.
Í raun eru þetta þrjú mót um helgina, í fyrstu tveimur eru eknir 16 hringir í þriggja kílómetra langri brautinni en í síðasta mótinu, sem er Grand Prix-keppnin, eru eknir 35 hringir.
Lokakeppni Toyota-mótaraðarinnar fer síðan fram helgina 19. og 20. janúar á Taupo motorsport-brautinni skammt frá Auckland á Nýja Sjálandi.
Þrír íslenskir ökumenn í formúluna?
Tveir aðrir Íslendingar hafa reynt fyrir sér í kappakstri í Bretlandi síðustu misserin og ef fram heldur sem horfir verða þeir þrír næsta sumar.Viktor Þór Jensen, sem á íslenska móður og keppir fyrir Ísland, er nítján ára og keppti í fyrra í formúlu-3 í Bretlandi. Sú keppni er tvískipt, annars vegar í landsflokki og hins vegar í alþjóðlegum flokki. Í þeim fyrrnefnda eru bílarnir heldur kraftminni, en keppnin fer samt þannig fram að báðir flokkarnir eru saman í brautinni.
Jón Ingi Þorvaldsson, ríflega þrítugur Skagamaður, keppti í fyrrahaust í Palmer Audi-formúlunni bresku og ætlar í hana aftur núna með vorinu.
Viktor Þór byrjaði í Palmer Audi-formúlunni og varð á sínum tíma yngsti keppandinn til að sigra þar. Hann var um tíma í unglingalandsliði Bretlands í karti. Hann keppti í landsflokki í formúlu-3 í fyrra en verður í alþjólega flokknum í ár enda er hann kominn með umboðsmann og kostunaraðila þannig að hann getur einbeitt sér að akstrinum. Annar umboðsmanna hans er systir Damons Hills, heimsmeistara í formúlu-1 árið 1996.
Kristján og Viktor mætast á kappakstursbrautinni
Allt bendir til þess að þeir Kristján Einar og Viktor Þór mætist á kappakstursbrautinni í sumar. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins er ætlunin hjá Carlin-liðinu í Bretlandi að láta Kristján Einar keppa í formúlu-3 í sumar. Það eina sem á eftir að ákveða er hvort hann fer í landsflokkinn eða alþjóðaflokkinn. Carlin-liðið hefur ekki enn gefið út hver verður fimmti ökumaður þess í alþjóðaflokknum, en þar má hvert lið vera með fimm ökumenn. Eru líklegast að halda því opnu fyrir Kristján Einar ætli þeir sér að senda hann í þann flokk.Kristján Einar æfði hjá Carlin í Bretlandi og tími hans þar bendir til að liðið hafi áhuga á að senda hann í alþjóðaflokkinn enda var tími hans á æfingum það góður að dugað hefði til sigurs í landsflokknum. Forráðamenn Carlin telja því Kristján Einar svo gott sem tilbúinn í alþjóðaflokkinn, en síðan vakna spurningar um hvort ekki sé eðlilegra að hann byrji í landsflokki þar sem hann virðist jafnvel eiga von um að vera í fremstu röð, og færi sig þá síðan upp í alþjóðaflokk á næsta ári.
Hver svo sem niðurstaðan verður hjá Carlin-liðinu þá er ljóst að þeir Kristján Einar og Viktor Þór eiga eftir að hittast á kappakstursbrautinni í sumar.






