Kristján æfir í Manfeild
Kristján Einar Kristjánsson er kominn til Manfield-brautarinnar í Nýja Sjálandi og tekinn til við æfingar en þar keppir hann í toyota-formúlunni nýsjálensku um helgina.
Kristján Einar byrjaði vel á Manfeild. Besti hringur hans var 1:06,0 mínútur og var hann rétt rúmri sekúndu frá besta tíma dagsins, sem var 1:04,8 mín. Hann snarsnéri bílnum í lok æfingar og endaði utan brautar en hvorki bíl né bílstjóra sakaði.
Á Manfeild verður stærsta keppnishelgin í toyotaformúlunni því lokakeppni sunnudagsins er jafnframt Grand Prix-mót Nýja Sjálands. Eknir verða eknir 35 hringir á brautinni sem er 3,03 km, en í keppnunum tveimur á undan eru eknir 16 hringir.
Næstu æfingar eru á morgun, föstudag, tímatökur og fyrsta keppni á laugardag og svo tvisvar keppt á sunnudag.






