Reynslusarpur Kristjáns Einars stækkar til muna
Kristján Einar Kristjánsson öðlaðist mikla reynslu í því sem drifið getur á daga kappakstursmanna í Manfeild-brautinni á Nýja Sjálandi um helgina. „Hann hlaut eldskírn í kappakstri í dag,“ sagði Matt Ogle tæknistjóri hans eftir mótið.
Kristján Einar varð fyrir því óhappi í fyrstu keppni helgarinnar að missa stjórn á bíl sínum í beygju svo hann flaug út úr henni og endaði á öryggisvegg.
Bíllinn var tekinn í sundur milli keppna til að leita að bilun. Ekkert fannst fyrr en verið var að ljúka samsetningu hans á ný, en þá var of seint að gera nokkuð við.
Kristján Einar fór því út í startið á síðustu mínútunni sem hann hafði til þess og með bílinn í því ástandi sem hann var. Þá tók við lengsti kappakstur helgarinnar og í honum lenti hann í flestu sem upp getur komið í keppni.
„Hann tók nokkrum sinnum fram úr keppinautum með tilþrifum, fór út úr braut, missti menn fram úr sér og náði fram úr þeim aftur. Hann fékk einnig bíl í hliðina á sér en snéri sig út úr því og sýndi gífurlega keppnishörku og góðan kappakstur frá upphafi til enda. Það var enginn byrjendabragur á Íslendingnum í grand prix-keppninni,“ sagði Ogle.
Vegna vélarbilunar í annarri umferð tímatökunnar á laugardag byrjaði Kristján Einar í 18. sæti eða aftastur. Hann lauk grand prix-keppninni í 13. sæti á tímanum 43:33,543 mín. og var aðeins 17,6 sek frá Andy Knight sem sigraði á 43:15,936 mín.
Um næstu helgi fara síðustu þrjár keppnir nýsjálensku Toyotaförmúlunnar fram í Taupo Motorpark-brautinni.
Myndasyrpa: Kristján Einar í Toyotaformúlunni á Nýja Sjálandi
Kristján Einar Kristjánsson er ungur íslenskur ökuþór sem hóf keppni í formúlukappakstri í ársbyrjun 2008. Keppnisferilinn hóf hann niður í Nýja Sjálandi í Toyotaformúlunni nýsjálensku.
Birtingardagur: Mánudaginn, 14. janúar 2008






