Kristján Einar með brotinn væng og brotinn öxul
Kristján Einar Kristjánsson sækir fram á við í keppni í Toyotaformúlunni á Nýja Sjálandi. Hann varð í 14. sæti í keppni tvö sl. nótt þrátt fyrir að aka hluta kappakstursins með brotinn framvæng eftir samstuð við annan nýliða.
Keppnishelgin í Taupo er sú þriðja og síðasta í röðinni og hún hefur ekki verið átakalaus. Kristján Einar hefur háð harða keppni við Michael nokkurn Pickens um nýliðabikar mótanna. Þeir renndu saman í keppninni í nótt svo að bíll Kristjáns laskaðist sem fyrr segir.
Kristján Einar tapaði dýrmætum stigum í keppninni um nýliðabikarinn þeim slag í fyrsta kappakstrinum í Taupo í gær, föstudag, þegar hann kom inn eftir einn hring á brautinni brotinn öxul og gat ekki haldið áfram.
Lokakeppni Toyotaformúlunnar fer fram í nótt kemur að íslenskum tíma. Þá verða eknir 20 hringir í stað 10 og keppt um minningarbikar Denny Hulme, eins fremsta ökuþórs Nýsjálendinga sem lést 1999 er hann fékk hjartaáfall í keppni.
Kristján Einar hefur kappaksturinn af ellefta rásstað af 20 eftir góða frammistöðu í tímatökunum í Taupo.
Liðsfélagi hans, Matt Halliday, var stigahæstur fyrir kappaksturinn sl. nótt en féll úr leik og missti að öllum líkindum þar með af titlinum.
Myndasyrpa: Kristján Einar í Toyotaformúlunni á Nýja Sjálandi
Kristján Einar Kristjánsson er ungur íslenskur ökuþór sem hóf keppni í formúlukappakstri í ársbyrjun 2008. Keppnisferilinn hóf hann niður í Nýja Sjálandi í Toyotaformúlunni nýsjálensku.
Birtingardagur: Mánudaginn, 14. janúar 2008






