Kristján Einar vann sig jafnt og þétt fram á við

Kristján Einar í návígi í Taupo sl. nótt. stækka

Kristján Einar í návígi í Taupo sl. nótt.

Kristján Einar Kristjánsson lauk keppni í Toyotaformúlunni nýsjálensku í nótt en hann hefur keppt þrjár helgar í röð í TRS-mótaröðinni hjá andfætlingum okkar. Þar hefur hann staðið sig vel, einna best í nótt er hann vann sig fram úr fimm bílum í kappakstrinum.

Lokamótið var til minningar um nýsjálenska ökuþórinn Denny Hulme  og fór fram á Taupo brautinni. Vegna óhapps í tímatökum föstudag ræsti Kristján Einar 18. og aftastur. Það dró ekki úr honum kjark því hann sótti vel og vann sig upp jafnt og þétt fram á við.

Hann endaði í 13. sæti og var 29:15,387 mínútur með hringina 20, sem hver um sig er 3.330 metrar. Munaði því um 1,6 sekúndu á hring að meðaltali á milli Kristjáns Einars og efsta manns.

Kristján Einar sagði eftir keppnina í nótt að hann væri nokkuð sáttur með að hafa unnið sig upp um fleiri sæti en í fyrri keppnum mótsins. „Hins vegar voru það vonbrigði að þurfa að byrja aftast því keppnin er svo jöfn og bílarnir aka mjög þétt í brautinni.

En keppnin var góð. Og það var ákveðið skref á ferlinum að keyra fyrir framan meira en hundrað þúsund manns og upplifa þá umfangsmiklu starfsemi sem fylgir A1GP-alþjóðakeppninni sem fram fór samhliða TRS-mótunum í brautinni um helgina.

Eins og undanfarnar helgar var keppnin gríðarlega hörð og þrátt fyrir nærri hálftíma langan kappakstur komu sjö efstu bílar í mark á sömu sekúndunni.

Það er einnig til marks um hve jafnt er á með keppendum, setti Mann Halliday nýtt brautarmet í keppni tvö í gær sem var svo slegið af Dominic Storey í dag. Storey setti hraðasta hring í keppninni, 1:24,927 mín., en hann kom þrátt fyrir það síðastur keppenda í mark á heildartímanum 29:09,835 mínútum,“ sagði Kristján Einar.

Myndasyrpa: Kristján Einar í lokamótinu í Taupo í Nýja-Sjálandi

Kristján Einar Kristjánsson, ungur íslenskur ökuþór sem hóf keppni í formúlukappakstri í ársbyrjun 2008, lauk um helgina þriðju mótshelginni í röð og þeirri síðustu í Toyotaformúlunni í Nýja Sjálandi. Hann stóð sig með ágætum og ný verkefni í Evrópu taka við í framhaldinu. Í syrpu þessari eru myndir frá keppnum hans í Taupo.

Birtingardagur: Sunnudaginn, 20. janúar 2008

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is