„Mjög spenntur fyrir því að keppa í formúlu-3“

Kristján Einar á ferð í formúlu-3 bílnum í Pembrey í Wales. stækka

Kristján Einar á ferð í formúlu-3 bílnum í Pembrey í Wales. mbl.is

„Ég er mjög spenntur fyrir því að keppa í bresku formúlu-3 mótaröðinni með Carlin-liðinu. Stuðningur sem ég hef notið hjá liðinu meðan ég hef verið til prófunar hjá því hefur verið frábær og ég hef þegar myndað sterkt samband við vélfræðing minn,“ segir Kristján Einar Kristjánsson í tilefni þess að hann hefur verið ráðinn til að keppa í bresku formúlunni í ár.

„Ég vil nota tækifærið og þakka liðinu og styrktaraðila mínum, SALT Investments, fyrir að veita mér tækifæri til að keppa í einni mikilverðustu formúlukeppni heims.

Takmarkið er að endurgjalda það traust sem mér er sýnt með spennandi kappakstri á árinu og keppni um landstitilinn,“ segir Kristján Einar einnig. Hann er þessa dagana með liði sínu - og öðrum liðum formúlu-3 - við æfingar í Pembrey-brautinni í Wales.

Kristján Einar er 19 ára og Íslandsmeistari í körtukappakstri.

Formúla-3 í Bretlandi hefur löngum verið nokkurs konar uppeldisstöð fyrir framtíðarökuþóra formúlu-1. Fyrrverandi meistarar hennar hafa orðið heimsmeistarar ökuþóra í formúlu-1. Má þar m.a. nefna Jackie Stewart og Ayrton Senna. 

Þá hafa nokkrir núverandi keppendur formúlu-1 orðið meistarar í greininni, svosem  David Coulthard, Takuma Sato og Nelson Piquet yngri. Auk þeirra kepptu Rubens Barrichello og Jenson Button á sínum tíma í greininni. 

Carlin-liðið hefur hrósað oftar sigri í hinni bresku formúlu-3 en nokkurt annað lið, eða 79 sinnum.

Heimasíða Carlin-liðsins

Kristján Einar með forsvarsmönnum Carlinliðsins

Kristján Einar með forsvarsmönnum Carlinliðsins

Myndasyrpa: Kristján Einar í Toyotaformúlunni á Nýja Sjálandi

Kristján Einar Kristjánsson er ungur íslenskur ökuþór sem hóf keppni í formúlukappakstri í ársbyrjun 2008. Keppnisferilinn hóf hann niður í Nýja Sjálandi í Toyotaformúlunni nýsjálensku.

Birtingardagur: Mánudaginn, 14. janúar 2008

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is