McLaren með tvo efstu menn í Barcelona

Hamilton var brosmildur í Barcelona í dag.
Hamilton var brosmildur í Barcelona í dag. ap

McLarenmenn höfðu yfirhöndina gegn Ferrari annan daginn í röð við  bílprófanir í Barcelona. Lewis Hamilton setti besta brautartímann og liðsfélagi hans Heikki Kovalainen þann næstbesta. Sló hann landa sínum og heimsmeistara, Kimi Räikkönen, við.

McLarenliðið prófaði í dag nýjungar í bílinn og var Hamilton hálfri sekúndu fljótari með hringinn en Räikkönen. Þykir ljóst að frammistaða þeirra Kovalainen lyfti lundinni meðal liðsmanna.

Fyrir hádegi  notuðu McLaren tíman til að æfa þjónustustopp og líktu eftir tímatökum. Eftir hádegi óku þeir hins vegar í löngum lotum.

Nico Rosberg sýndi eina ferðina enn að við miklu má búast af hálfu  Williams í ár. Setti hann fjórða besta tímann og varð á undan Felipe Massa hjá Ferrari.

Árangur Giancarlo Fisichella hjá Force India, Mætti Indlands, er eftirtektarverður en hann setti sjötta besta tíma dagsins á nýja bíl liðsins.

Sebastian Vettel hljóp í skarðið fyrir David Coulthard hjá Red Bull og sýndi hvers hann er megnugur með sjöunda besta tímanum í fyrsta sinn sem hann ekur RB4-bílnum.

Coulthard meiddist á hálsi við æfingar og verður ákveðið á morgun hvort hann getur hafið æfingar á ný eða hvort Vettel ekur áfram.

Jenson Button náði loks að bæta Hondabílinn umtalsvert og setti tíunda besta tímann. Athygli vekur að Fernando Alonso hjá Renault náði aðeins 13. besta tíma dagsins.

Niðurstaða æfingarinnar varð annars sem hér segir:

Röð Ökuþór Bíll Tími Hri.
1. Hamilton McLaren 1:21.234 81
2. Kovalainen McLaren 1:21.434 68
3. Räikkönen Ferrari 1:21.722 72
4. Rosberg Williams 1:22.309 75
5. Massa Ferrari 1:22.513 102
6. Fisichella Force India 1:22.516 102
7. Vettel Red Bull 1:22.558 109
8. Kubica BMW 1:22.625 94
9. Button Honda 1:22.659 67
10. Liuzzi Force India 1:22.942 89
11. Nakajima Williams 1:22.977 100
12. Trulli Toyota 1:23.023 98
13. Alonso Renault 1:23.112 77
14. Barrichello Honda 1:23.169 74
15. Heidfeld BMW 1:23.284 77
16. Bourdais Toro Rosso 1:23.323 98
17. Webber Red Bull 1:23.458 58
18. Piquet Renault 1:23.467 45
19. Glock Toyota 1:23.561 80
Räikkönen í Barcelona í dag en landi hans Kovalainen hjá …
Räikkönen í Barcelona í dag en landi hans Kovalainen hjá McLaren ók hraðar. ap
Button sýndi að Hondunni er loks að fara fram. Hér …
Button sýndi að Hondunni er loks að fara fram. Hér er hann milli aksturslota í Barcelona í dag. ap
Alonso gaf sér tíma til að sinna óskum áhugamanna um …
Alonso gaf sér tíma til að sinna óskum áhugamanna um formúluna í Barcelona í dag. ap
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert