Kristján æfir í Silverstone
Kristján Einar Kristjánsson ók í hinni sögufrægu braut Silverstone í Englandi í fyrsta sinn er hann var þar við æfingar í gær ásamt 24 öðrum keppendum hinnar bresku formúlu-3. Var þetta þriðja æfing vetrarins og jafnframt formlegur kynningardagur formúlunnar.
„Hún er erfið að því leyti að hún krefst algerrar einbeitingar - allan tímann. Það er lítið grip í brautinni og hún gefur þér hvergi möguleika á að slaka aðeins á," sagði Kristján Einar eftir aksturinn.
Hann var að aka í brautinni í fyrsta sinn sem fyrr segir og sagði hana vera erfiðustu brautina til þessa. Þar hófst keppni í formúlu-1 á sínum tíma, fyrir rúmri hálfri öld. Hefur Bretlandskappaksturinn oftast farið þar fram.
Æfingin gekk ágætlega hjá Kristjáni Einari. Hann var um tíma í öðru sæti í landsflokknum en í lok dagsins var hann með fimmta besta brautartímann í flokknum af átta ökumönnum og 22. besta tímann í heildina.
Talsvert gekk á í brautinni, nokkrar útafkeyrslur og rauð flögg til að stöðva aksturinn ef öryggi var ógnað, en æfingin var áfallalaus hjá Kristjáni Einari.
„Ég var tvisvar á þriðja hring þegar æfingin var stöðvuð svo þar fóru ný dekk fyrir lítið. Svo sprakk hjá mér tvisvar. Á morgun verður Carlin-æfing hérna og þá fær maður betra næði til að læra þessa frægu braut,“ sagði Kristján Einar.
Hann var annars ánægður með daginn og sagði tilfinninguna að hafa loksins ekið sjálfa Silverstone standa upp úr. „Maður er endalaust búinn keyra hana í tölvunni, en að að vera þarna sjálfur og stýra formúlubíl undir brúna frægu, það var ótrúleg upplifun.“
Í ljós kom á kynningunni í gær, að staðfest hefur verið þátttaka átta ökumanna í landsflokknum í hinni bresku formúlu-3 og 26 keppendur í alþjóðaflokknum.
Þátttaka Viktors Þórs enn óstaðfest
Viktor Þór Jensen hefur ráðgert að keppa í síðarnefnda flokknum í ár en hann keppti með góðum árangri í landsflokknum í fyrra og vann m.a. mót. Lið sem hann stefndi að þátttöku með ákvað hins vegar seint að tefla fram aðeins einum bíl.
Varð hann því þegar á veturinn leið að leita á ný mið og samkvæmt upplýsingum formúluvefjar mbl.is eru þau mál á lokastigi og því hefur þátttaka hans ekki verið staðfest enn.








