Fyrsta keppni Kristjáns Einars um helgina í Bretlandi

Kristján Einar ásamt bakhjarli sínum, Róbert Wessman frá SALT Investments, og systkynunum Jens Hilmari og ... stækka

Kristján Einar ásamt bakhjarli sínum, Róbert Wessman frá SALT Investments, og systkynunum Jens Hilmari og Helenu sem afhjúpuðu bílinn. mbl.is/Guðni Þorbjörnsson

Kristján Einar Kristjánsson hefur á morgun æfingar í Oulton Park-brautinni í Englandi, en þar fer fyrsti kappakstur ársins í hinni bresku formúlu-3 fram um helgina. Hann fékk á dögunum afhent skírteini til formúlukeppni og sýndi bíl sinn í endanlegu útliti.

„Ég er verulega stoltur af þessu,“ sagði Kristján Einar þegar Garðar Gunnarsson, formaður Landssambands íslenskra akstursíþrótta (LIA) afhenti honum formlega alþjóðlegt keppnisskírteini.

Garðar kvað við það tækifæri áfangann merkilegan fyrir LÍA því Kristján Einar væri sá fyrsti sem íslenskt mótorsport hefði alið af sér til að hljóta alþjóðlegt keppnisskírteini til formúlukappaksturs af þessari gráðu.

Áður hefur sambandið gefið út skírteini fyrir Viktor Þór Jensen til formúlukappakstursins. 

Um leið og Kristján Einar fékk skírteinið kom í ljós hvernig útlit keppnisbíls hans verður. Er hann svartur og silfraður en með hvítri trjónu.

Sem fyrr segir fer fyrsta mótið fram um helgina en Kristján Einar keppir í landsflokki hinnar bresku formúlu-3. Æfingar fara fram á morgun, föstudag, tímatökur á laugardaginn og keppendur frá svo frí á páskadag en reyna síðan með sér tvisvar á mánudeginum, annan í páskum.

Garðar Gunnarsson afhendir Kristáni Einar alþjóðlega keppnisskírteinið.

Garðar Gunnarsson afhendir Kristáni Einar alþjóðlega keppnisskírteinið. mbl.is/Guðni Þorbjörnsson

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is