Kristján Einar spjarar sig

Kristján Einar í Oulton Park í morgun. stækka

Kristján Einar í Oulton Park í morgun.

Kristján Einar Kristjánsson stóð sig vel í tímatökum fyrsta kappaksturs sem hann þreytir í hinni bresku formúlu-3. Setti hann fjórða besta tíma af átta keppendum í landsflokki og 22. af 27 í heildina og af þeim rásstað ræsir hann af stað í sinni fyrstu keppni, á mánudag.

Kappaksturinn fer fram í Oulton Park-brautinni skammt frá Manchester í Englandi. Æfingar fóru fram í gær og tímatökur í dag, sú fyrri í morgun og hin seinni síðar í dag.

Tímatakan í morgun ræður rásröð fyrri kappakstursins á mánudag, annan í páskum en sú seinni ákvarðar rásröð seinni keppninnar.  

Nokkrar snjóflyksur féllu til jarðar er tímatakan fór fram og einmitt við þau skilyrði setti Kristján Einar sinn besta hring. Af átta keppendum í landsflokknum náði hann fjórða besta tímanum, sekúndu á eftir liðsfélaga sínum hjá Carlin sem ók hraðast. Náði hann 16. besta tímanum af 27 í heildina.

Ökumenn Carlin settu einnig tvo bestu tímana í alþjóðaflokknum og þar með í heildina.

Snarsnerist í seinni tímatöku

Í seinni tímatökunni setti Kristján Einar aftur 22. besta tíma heildarinnar en sjötta besta af níu í landsflokknum. Hann varð fyrir því að snarsnúa bíl sínum og stöðvast á beygjubríkum við svonefnda Hislops-beygju um miðbik tímatökunnar.

Úrslit fyrri tímatökunnar í Oulton Park

Úrslit seinni tímatökunnar í Oulton Park

Heimasíða Kristjáns Einars

Kristján Einar fylgist með er lokahönd er lögð á undirbúning bílanna fyrir tímatökuna.

Kristján Einar fylgist með er lokahönd er lögð á undirbúning bílanna fyrir tímatökuna.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is