2008 bíl Toro Rosso frumekið
Nýjum keppnisbíl Toro Rosso var frumekið í Vairano á Ítalíu fyrir röskri viku en liðið teflir enn fram keppnisbíl síðasta árs. Á því verður væntanlega breyting eftir þrjár vikur, í Spánarkappakstrinum í Barcelona.
2008-bíll Toro Rosso er byggður á sama grunni og 2008-bíll Red Bull. Þar sem keppnismenn liðsins voru uppteknir í fjarlægum álfum sá ungur ökuþór, sem er á mála hjá Red Bull, Brendon Hartley, um aksturinn.
Hartley, sem er 18 ára og liðsfélagi Kristjáns Einars Kristjánssonar hjá Carlin-liðinu í formúlu-3 í Bretlandi, ók STR3-bílnum í Vairano. Sinnti hann fyrst og fremst svonefndum beinlínuprófunum til að vega megi og meta skilvirkni yfirbyggingar bílsins og vængja.
Þetta var ekki frumraun hans í formúlu-1 bíl, hún átti sér stað í Riyadh í Saudi-Arabíu í mars er hann sinnti sýningarakstri þar fyrir Red Bull.
Hartley er nýsjálenskur og varð í fyrra yngsti ökuþór sögunnar til að vinna Evrópuröðina í Renault-formúlunni.






