Íþróttir
|
Formúla 1
| mbl
| 26.4.2008
| 10:53
Kristján Einar ræsir beint fyrir aftan Viktor Þór
Viktor Þór Jensen og Kristján Einar Kristjánsson hefja keppni 24. og 26. sæti af 29 ökuþórum í fyrri kappakstri morgundagsins í formúlu-3 í Croft-brautinni á Englandi.
Í tímatökum í morgun varð Viktor Þór í 19. sæti í alþjóðaflokki af 20, var rúmum 2,2 sekúndum lengur með hringinn en sá sem hraðast ók.
Sáralitlu munaði á íslensku keppendunum því Kristján Einar var aðeins 75 þúsundustu úr sekúndu lengur með hringinn. Ræsir hann af stað í fyrri mótinu á morgun beint fyrir aftan Viktor Þór. Varð Kristján í sjöunda sæti af átt í landsflokknum.
Viktor Þór keppir í hinni bresku formúlu-3 fyrir Nexa Racing en Kristján Einar fyrir Carlin.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin







