Tímamót í Croft

Viktor Þór frumekur formúlu-3 bíl sínum í Croft í gær. stækka

Viktor Þór frumekur formúlu-3 bíl sínum í Croft í gær.

Tímamót verða í sögu íslenskra akstursíþrótta um helgina er Viktor Þór Jensen og Kristján Einar Einarsson keppa í bresku formúlu-3 móti sem fram fer í Croft á Englandi. Er þetta í fyrsta sinn sem tveir íslenskir  ökumenn taka þátt í sama formúlukappakstri.

Viktor Þór ók í fyrsta sinn í gær en hann hefur misst af öllum æfingum til þessa og fyrstu kappaksturshelginni. Því notaði hann tímann fyrst og fremst til að átta sig á bílnum nýja. Á fyrri æfingunni var hann lengst hinna 19 keppenda í alþjóðaflokki með hringinn en á seinni æfingunni hafði hann einn ökumann fyrir aftan.

Kristján Einar setti áttunda besta tíma níu keppenda í landsflokki á fyrri æfingunni. Á þeirri seinni gerði hann enn betur, varð þá þriðji í landsflokki og sem meira er; ók hraðar en Viktor Þór sem er þó á öflugri bíl í alþjóðaflokknum.

Alvarleg bilun varð í bremsukerfi bíls Kristján Einars á fyrri æfingunni. Varð að skipta alveg um það milli æfinga. 

Úrkoma var og væta á brautunum á seinni æfingunni sem háði ökuþórunum. Skautuðu þeir margir í brautinni og runnu hvað eftir annað út fyrir braut. Á endanum var æfingin stöðvuð vegna vætunnar.

Kristján Einar Einarsson á ferð í fyrsta formúlu-3 mótinu, í Oulton Park.

Kristján Einar Einarsson á ferð í fyrsta formúlu-3 mótinu, í Oulton Park.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is