Kristján Einar í miðjum hóp

Frá upphafi fyrri kappakstursins í Croft í dag. Vætustrókar standa aftur úr bílunum. stækka

Frá upphafi fyrri kappakstursins í Croft í dag. Vætustrókar standa aftur úr bílunum. mbl.is/fota

Kristján Einar Kristjánsson varð fimmti í sínum flokki af níu keppendum í fyrri formúlu-3 kappakstrinum sem fram fór í Croft-brautinni á Englandi í dag. Viktor Þór Jensen varð 14. í alþjóðaflokki af 20 ökuþórum.

Væta var á brautunum er kappaksturinn fór fram í Croft og sigurvegari varð  mexíkanskur ökumaður, Sergio Perez. 

Keppt er sameiginlega í báðum flokkum og varð Viktor Þór 17. í mark, mínútu á eftir fyrsta manni. Kristján Einar varð 20. í heildina.  

Kristjáni tókst ekki upp sem skyldi í tímatökum í gær og hóf keppni í sjöunda sæti í landsflokknum. Hann vann sig fram úr tveimur bílum og það lyfti honum úr sjötta sæti í það fjórða í stigakeppni ökumanna. Er hann með 22 stig og næsti maður ofan við hann er með 28 stig í þriðja sæti.

Snemma í keppninni ók liðsfélagi Kristjáns Einars, Oliver Turvey, sem keppir í alþjóðaflokknum í hliðina á honum. Þótt samstuðið hafi ekki verið alvarlegt var það nóg til að skekkja hægra afturdekkið á bíl Kristjáns Einars þannig að það festist hægt og sígandi það sem eftir var keppninnar.

„Ég áttaði mig ekki á því hvað var að en fann að bíllinn var ekki að hlýða mér eins og hann á að gera,“ sagði Kristján Einar. „Það var ekki fyrr en mínir menn tóku hann í sundur eftir keppni að það kom í ljós hvað var að. En það er búið að laga og núna bíð ég bara eftir að komast í seinni keppnina.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is