Viktor Þór og Kristján Einar héldu sig á brautinni

Viktor Þór (t.v.) og Kristján Einar í Crofts í dag. stækka

Viktor Þór (t.v.) og Kristján Einar í Crofts í dag. mbl.is/ve

Viktor Þór Jensen og Kristján Einar Kristjánsson óku af öryggi í seinni formúlu-3 kappakstrinum í Croft í dag en sex keppinautar þeirra skullu saman í bleytunni og flugu  úr brautinni á fyrsta hring.

Ökumenn sakaði ekki en dekk frá einum bílanna skall á brautarstarfsmanni af slíkum krafti að hann brotnaði á báðum fótum.

Keppnin var stöðvuð þegar í stað og leið all langur tíma þar til bílarnir höfðu verið fjarlægðir og ræst var að nýju.

Viktor Þór kom 15. í mark í heildina en varð 11. í alþjóðaflokknum. Kristján Einar var 11 sekúndur lengur en Viktor Þór með hringina 19, enda á aflminni bíl. Hann varð sjötti í landsflokknum af átta sem komust í mark.  

Kristján Einar var sjöundi í röð keppenda í landsflokknum á rásmarki og varð sjötti þeirra í mark. Hann hefur átt í vandræðum með bremsur á æfingunum undanfarna daga og var skipt um bremsukerfi í bílnum sl. föstudag.

Undir lok seinni kappakstursins í dag fóru nýjur bremsurnar með þeim afleiðingum að hann átti fullt í fangi með að ljúka síðustu hringjunum.

Kristján Einar á ferð í Croft.

Kristján Einar á ferð í Croft. mbl.is/ve

Viktor Þór í keppninni í Croft í dag.

Viktor Þór í keppninni í Croft í dag. mbl.is/ve

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is