Kristján Einar og Viktor Þór keppa í Monza
Þegar Sverrir keppti í formúlu-3 fyrir rúmum fjórum áratugum var hún næsta formúla fyrir neðan formúlu-1. Hann varð þriðji í mark í Monza í æsispennandi keppni.
„Það er talsvert meira umfang í kringum þessa keppni en hinar fyrri þar sem verið er að keppa utan heimavallar og má segja að í dag leggi þrjú fullkomin viðgerðarverkstæði á hjólum af stað með bílana frá Bretlandi. Það eru fjórir risatrukkar sem fylgja sex keppendum Carlin til Monza,“ segir Kristján Einar sem lítur Monza-brautina fyrsta sinni en Viktor Þór keppti þar einnig í fyrra.
„Að sjálfsögðu hlakkar maður mikið til að keppa á þessari braut þar sem margir kaflar akstursíþróttasögunnar hafa verið skrifaðir! Hún er þekkt fyrir mjög langa og beina kafla og þykir sú braut mótaraðarinnar sem erfiðast er að spá fyrir um úrslit,“ segir Kristján Einar.
Í dag æfa ökuþórarnir sig í brautinni og síðan fer tímataka fyrri kappakstursins fram. Í fyrramálið, laugardag, er svo tímataka fyrir seinni kappaksturinn og í eftirmiðdaginn fer fyrri keppni helgarinnar fram. Seinni kappaksturinn verður svo háður á sunnudag.
Kristján Einar er í 5. sæti í keppni ökumanna í landsflokknum eftir fjögur mót með 22 stig. „Við erum þrír sem stöndum jafnir á stigatöflunni og það eru ekki nema fjögur stig í fjórða sætið þannig að það verður harður slagur um helgina,“ segir Kristján Einar.
Efstur í flokknum er liðsfélagi hans hjá Carlin, Andy Meyrick, sem keppir undir merkjum Wales.
Viktor Þór gekk ekki sem skyldi í Monza í fyrra. Þá keppti hann í landsflokknum en nú í alþjóðaflokknum. Hann varð í fimmta sæti í sínum flokki í fyrri kappakstrinum en í níunda sæti í þeim seinni. Á aðeins einni mótshelgi hafði honum gengið verr og varð hann fyrir því að falla úr þriðja sæti í það fjórða í stigakeppni ökuþóra. Báðir flokkarnir aka saman í brautinni en um sitt hvora keppnina er að ræða. Viktor Þór og Kristján Einar eru því samtímis á ferð þótt þeir keppi í sínum flokknum hvor.






