Tímatökum formúlu-3 í Monza aflýst vegna rigningar

Viktor Þór bíður í rigningunni áður en tímatökum var aflýst. stækka

Viktor Þór bíður í rigningunni áður en tímatökum var aflýst. fota

Aflýsa varð síðdegis fyrri tímatökum formúlu-3 mótanna sem fram fara í Monza á Ítalíu um helgina vegna úrhellis. Gildir því tímataka morgundagsins, sem átti einungis að vera fyrir seinni kappaksturinn, fyrir bæði mótin.

Tímatakan var stöðvuð eftir aðeins sex mínútur er einn ökumannanna flaug út úr brautinni á sínum öðrum hring. Þá höfðu 14 ökumenn af 27 sett tíma en liðsstjórarnir urðu sammála um að þeir myndu ekki gilda og tímataka morgundagsins yrði látin gilda fyrir báðar keppnir helgarinnar.

Keppendur biðu undir regnhlífum í hálftíma eftir því hvort hægt væri að hefja leik á ný en dómarar keppninnar ákváðu að of mikil áhætta væri að halda áfram vegna bleytunnar.

Besti tími hvers ökuþórs í tímatökunni á morgun mun gilda fyrir rásröð fyrri keppninnar og næstbesti tími ákvarðar rásröð kappaksturs sunnudagsins.

Viktor Þór Jensen og Kristján Einar Kristjánsson keppa í Monza um helgina. Í dag fóru þar fram tvær æfingar áður en rigningin setti strik í reikninginn.

Á fyrri æfingunni setti Viktor Þór 20. besta tímann og Kristján Einar þann 25. besta. Viktor varð 17. af 19 í alþjóðaflokknum á 1:49,079 mín., en Kristján fimmti af sjö í landsflokki á 1:49,874 mín.  

Á seinni æfingunni setti Viktor 19. besta tíma dagsins (1:48,175)  af 27 en Kristján þann 24. besta. Setti Kristján fjórða besta tímann (1:49,428)  í landsflokknum af sjö. Viktor setti hins vegar 16. besta tímann af 20 í alþjóðaflokknum.  Minnkaði hann bilið í fremsta mann úr rúmum 2,4 sekúndum á fyrri æfingunni í rúma 1,7 á þeirri seinni.

Meðal ökumanna í dag voru tveir Ítalir sem keppa sem gestir.

Kristján Einar í Monza í dag.

Kristján Einar í Monza í dag. fota

Bið keppenda eftir því að halda áfram í Monza í dag var til einskis vegna ...

Bið keppenda eftir því að halda áfram í Monza í dag var til einskis vegna vætunnar. fota

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is