Kristján Einar seigur í tímatökunum í Monza

Kristján Einar klár til keppni. stækka

Kristján Einar klár til keppni.

Kristján Einar Kristjánsson stóð sig vel í tímatökum fyrir formúlu-3 mótin tvö sem fram fara í Monza á Ítalíu í dag og á morgun. Fyrri kappaksturinn hefur hann þriðji í landsflokki og seinni kappaksturinn, á morgun, í öðru sæti.

Fresta þurfti tímatökunum þar til í dag vegna úrhellis í gær. Það rigndi enn  í morgun, en aðstæður voru þó mun betri. „Ég sá að minnsta kosti nefið á bílnum mínum sem ég gerði ekki þegar tímatakan hófst í gær,“  sagði Kristján Einar.

Hann náði þriðja besta tíma í tímatökum fyrir fyrri keppni helgarinnar og ræsir því þriðji í landsflokk formúlu 3. Hann verður sætinu framar í seinni kappakstrinum, eða annar, en næstbesti hringur hvers ökumanns réð röð á rásmarki seinni kappakstursins.

Tímatakan fór að nokkru leyti forgörðum hjæa Viktor Þór Jensen. Hann varð fyrir því að bensíngjöfin festist í botni á fjórða hring og kom því inn á viðgerðarsvæðið. Aðstoðarmenn hans löguðu bilunina en stuttu eftir að hann fór aftur út í brautina fór allt á sama veg aftur.

Af þessum sökum varð næstbesti hringur hans mun slakari og hefur hann seinni kappaksturinn því af 26. rásstað af 28. Kristján Einar verður á 20. rásstað. 

Eini góði hringur Viktors Þórs var hálfri sekúndu betri en besti hringur Kristján Einars. Hann hefur fyrri kappaksturinn í 17. sæti í alþjóðaflokknum en af 19 rásstað þar sem einn bíll úr landsflokki og ítalskur gestur urðu á undan. Kristján Einar leggur af stað þremur sætum aftar, eða af 22. rásstað, en keppt er samtímis í báðum flokkum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is