Viktor Þór tíundi en Kristján Einar féll úr leik

Viktor Þór í keppni í alþjóðaflokki formúlu-3. stækka

Viktor Þór í keppni í alþjóðaflokki formúlu-3. mbl.is/fota

Viktor Þór Jensen varð tíundi í alþjóðaflokki formúlu-3 kappakstursins  sem fram fór í Monza á Ítalíu í dag, en alls luku 16 keppni. Tólf ökumenn skiluðu sér ekki í mark og meðal þeirra var Kristján Einar Kristjánsson.

Með frammistöðu sinni vann Viktor Þór sín fyrstu stig en hann missti af tveimur fyrstu mótunum og hlaut engin stig í næstu tveimur, enda að aka nýjum bíl sínum þá í fyrsta sinn.  

Árangur Viktors Þórs verður að teljast góður því hann hóf keppni í 17. sæti. Bíll hans var honum erfiður í tímatökunum þar sem  sem bensíngjöfin festist í botni á fjórða hring. Hann kom því inn á viðgerðarsvæði og gert var við en stuttu eftir að hann kom aftur út í tímatökuna fór allt á sama veg.

„Þetta voru gífurleg vonbrigði, en það þýðir ekkert að velta sér upp úr því. Þessi niðurstaða gerir keppnina á morgun bara ennþá mikilvægari. Þá verð ég annar á rásmarki í landsflokknum og ég verð að einbeita mér að ná góðu starti og komast klakklaust í gegnum fyrstu beygjuna,“ sagði Kristján Einar eftir keppnina á Monza í dag.

Hann tók af stað þriðji í landsflokknum og tókst að sneiða hjá árekstri sem varð í fyrstu beygju eftir ræsingu. Vel gekk hjá honum  þar til í fimmta hring er gírkassinn bilaði svo keppninni var sjálfhætt.

Kappaksturinn vann Mexíkómaður að nafni Sergio Perez en það gerði hann með glæsibrag því hann hóf keppni í 14. sæti. Sá er varð annar, Nýsjálendingur að nafni Brendon Hartley, hóf keppni af 13. rásstað. 

Undir bílum keppenda voru slétt dekk í fyrsta sinn frá því á æfingunum í gær.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is