Kristján og Viktor fengu líka sinn skammt af regni

Kristján Einar fremstur í fylkingu í tímatökunum í Rockingham. stækka

Kristján Einar fremstur í fylkingu í tímatökunum í Rockingham.

Það rigndi víðar en í Mónakó á kappakstursmenn  í dag. Kristján Einar Kristjánsson og Viktor Þór Jensen fengu að kenna á rigningu í tímatökum í formúlu-3 í Rockingham-brautinni í Englandi.

Kristján Einar Kristjánsson náði fjórða besta hring landsflokksins í fyrri tímatökunni og fimmta sæti í þeirri seinni. Kristján vann sér það til ágætis að verða framar Viktori Þór í báðum tímatökum.

Viktor varð 18. af jafn mörgum í alþjóðaflokknum í fyrri tímatökunni en 17. í þeirri seinni. Keppt verður tvisvar á morgun og leggja þeir Kristján og Viktor af stað af 20. og 25. rásstað í fyrri kappakstrinum.

 Í þeim seinni deila þeir félagarnir hins vegar elleftu rásröðinni, leggja af stað af 21. og 22. rásstað. Rigning háði ökuþórunum mjög í Rockingham, bílar snarsnerust ótt og títt og sátu fastir svo stöðva varð leik nokkrum sinnum í báðum tímatökum og koma strandbílum til hjálpar svo hægt væri að halda áfram.  

„Menn voru að missa bílana hér og þar í brautinni og tímatökurnar ítrekað stöðvaðar með rauðum flöggum. Um tíma var mótsstjórnin að velta upp þeim möguleika að fresta keppni á morgun því veðurspáin er svipuð. En þeir hættu við það þannig að við getum átt von á dálítið skrautlegri keppni,“ sagði Kristján Einar eftir tímatökurnar.

Kristján Einar náði sínum besta hring strax í byrjun fyrri tímatökunnar  og reyndist það eini hreini fljúgandi hringur hans í henni. Hún var stöðvuð strax á þriðja hring en þegar áfram var haldið ók Kristján Einar gegnum stóran poll sem myndast hafði á brautinni. Við það snarsnerist bíllinn og hafnaði utan brautar. Hann  ók ekki meira  fyrr en eftir hádegið.

Viktor Þór lenti einnig út fyrir  og var ekki sáttur við frammistöðu sína.

Kristján Einar í rigningunni í Rockingham.

Kristján Einar í rigningunni í Rockingham.

Viktor Þór (fjærst) í vanda, bíður meðan aðrir aka hjá til að geta haldið áfram ...

Viktor Þór (fjærst) í vanda, bíður meðan aðrir aka hjá til að geta haldið áfram eftir snúning á brautinni.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is