Viktor og Kristján óku betur í seinna mótinu

Viktor Þór á ferð í Rockingham. stækka

Viktor Þór á ferð í Rockingham. mbl.is/jamesbearne.com

Viktor Þór Jensen og Kristjáni Einari Kristjánssyni gekk betur í seinni kappakstrinum í formúlu-3 nú síðdegis í Rockingham-brautinni í Englandi. Viktor Þór varð fimmtándi af 18 keppendum í alþjóðaflokki og Kristján Einar fimmti af af níu í landsflokki.

Þeir hófu keppni hlið við hlið á níundu rásröð, Kristján á 17. rásstað en Viktor á þeim 18. Sá síðarnefndi ók 18. yfir marklínuna og Kristján 4 sekúndum og sex sekúndubrotum seinna en tveimur sætum aftar.

Keppendur í báðum flokkum, alls 27, keppa saman þótt um sjálfstæða keppni sé að ræða í hvorum flokki. Rigning var allan tímann sem kappaksturinn fór fram. 

Í fyrri kappakstri dagsins varð Viktor Þór 17. í sínum flokki eða tveimur sætum aftar en nú. Þá varð hann rúmum hring á eftir fyrsta manni en lauk keppni í seinna mótinu á sama hring og sigurvegarinn. Kristján Einar féll úr leik eftir einn hring í fyrra mótinu.

Sænskur ökuþór að nafni Sebastian Hohenthal kom fyrstur að marki í seinni kappakstri dagsins en finnskur vann þann fyrri. Hohenthal vann með því sinn fyrsta mótssigur í hinni bresku formúlu-3.

Næst keppa íslensku ökuþórarnir í Snetterton í Englandi 7.-8. júní nk.

Regnhlífin kom að góðu gagni fyrir Viktor Þór þegar tímatökur voru stöðvaðar ítrekað í gær.

Regnhlífin kom að góðu gagni fyrir Viktor Þór þegar tímatökur voru stöðvaðar ítrekað í gær. ap

Kristján Einar á ferð í Rockingham en brautin hallar að hluta.

Kristján Einar á ferð í Rockingham en brautin hallar að hluta.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is