Viktor Þór framar en áður
Viktor Þór Jensen fann sig ágætlega á fyrri æfingu dagsins í formúlu-3 í Snetterton brautinni í Englandi. Þar keppa þeir Kristján Einar Kristjánsson í tveimur mótum um helgina. Viktor Þór vann sigur í landsflokknum í Snetterton í fyrra.
Hann hefur fært sig upp um flokk og keppir í ár í alþjóðaflokknum. Hefur ekki gengið sem skyldi það sem af er. Í morgun voru framfarir þó augljósar því hann setti 14. besta tíma æfingarinnar og 12. besta tímann af 18 keppendum í flokknum. Var hann aðeins 1,2 sekúndu frá besta brautartímanum en brautin var vot af völdum rigningar.
Á seinni æfingunni tókst ekki eins vel til því þá setti Viktor Þór 17. besta tímann í flokknum og þann 20. besta í heildina, en keppendur í alþjóðaflokki og landsflokki aka saman á æfingum og í keppni þótt um aðskilda keppni sé að ræða.
Kristján Einar setti 23. besta tímann á fyrri æfingunni og þann sjötta besta í flokknum. Á seinni æfingunni var hann einu sæti framar í flokknum og í heildina en mun skemur frá besta tíma en á fyrri æfingunni. Munaði aðeins tveimur tíundu úr sekúndu á þeim Viktori í seinni æfingunni en rúmlega hálfri annarri sekúndu á þeirri fyrri.
Á morgun, laugardag, fara tímatökur fyrir mótin tvö fram, sú fyrri klukkan 10:10 að íslenskum tíma og sú seinni klukkan 14:10. Fyrri kappaksturinn á sunnudag fer fram klukkan 10:25 að íslenskum tíma og sá seinni klukkan 15:00.
Viktor Þór hefur tekið heimasíðu sína á netinu í gagn á ný. Hefur hún tekið gagngerum breytingum, en hönnuðir hennar hafa að undanförnu einnig unnið fyrir leikarann Eddy Murphy.








