Á bratta að sækja í Snetterton

Viktor Þór á góðar minningar frá Snetterton. stækka

Viktor Þór á góðar minningar frá Snetterton. mbl.is/jamesbearne

Viktor Þór Jensen verður með 18 bíla á undan sér á rásmarki fyrri formúlu-3 kappakstursins í Snetterton í Norfolk á Englandi á morgun og 17 í seinni kappakstrinum síðar um daginn. Í báðum tímatökum í dag varð hann 16. í alþjóðaflokki af 18 keppendum.

Í seinni tímatökunni var Viktor Þór miklu nær tíma ráspólshafans en í þeim fyrri. Í seinni akstrinum náðust betri brautartímar en í morgun og munaði 1,6 sekúndum á besta tíma Viktors og ráspólshafans, en í fyrri tímatökunum 1,8 sek.

Viktor Þór á góðar minningar frá Snetterton því þar vann hann sigur í landsflokki í formúlu-3 í fyrra.

Það hellirigndi í báðum tímatökum sem hægði mjög á hópnum. Talsvert var um útafakstur og ökumenn áttu erfitt að hemja bíla sína því sleipt var mjög í rennblautri brautinni. Rauðum flöggum var veifað oftar en einu sinni í báðum tímatökum og í þeirri fyrri náði Kristján Einar Kristjánsson aldrei að aka hreinan hring.

„Þegar brautin er svona blaut og margra metra vatnsstrókur stendur aftur úr hverjum einasta bíl er freistandi að hægja á sér án þess að hleypa bílum fram úr og freista þess að búa sér til gott bil í næsta bíl til að ná einum fljúgandi hring. Sérstaklega af því að á Snetterton eru tveir þokkalegar beinir og hraðir kaflar.

Messað yfir ökumönnum

Þegar hins vegar fleiri en einn og fleiri en tveir eru reyna eitthvað í þessa áttina þá fara heilu hringirnir forgörðum hjá næstu mönnum sem á eftir koma. Fjórir hringir í fyrri tímatökunni hjá mér ónýttust út af svona akstri og það gerðist hjá fleirum - enda var fjölmennt í stjórnstöð keppninar þegar dómarar voru að lesa yfir ökumönnunum sem þetta gerðu.

Menn pössuðu sig betur í seinni tímatökunni en það breytti litlu fyrir mig. Uppsetningin á bílnum var ekki að virka og sama gerðist hjá Andy Meyrick liðsfélaga mínum sem hefur til þessa verið á ráspól landflokksins í hverri einustu keppni.

Kristján Einar úti á kornakri

Ég var aldrei nálægt hraðanum sem ég náði á æfingunum í gær þótt ég reyndi og reyndi - með þeim afleiðingum að eftir tímatökurnar líktist bíllinn meira landbúnaðartæki en formúlubíl. Ein beygjan hérna fyrirgefur engin mistök þegar brautin er svona hál og ef hárnákvæmri aksturslínu var ekki fylgt í henni lá leiðin beint út á kornakur við hliðina! Og það enduðum við sex bílar áður en yfir lauk,“ sagði Kristján Einar.

Hann verður með 23 bíla á undan sér á rásmarkinu í fyrra mótinu en 24 í seinni. Ræsir hann af 24. rásstað í fyrra mótinu en 25. í því seinna. Hann varð sjötti af níu í flokknum í fyrri tímatökunum en sjöundi í þeim seinni.

Kristján Einar stóð í slag um fyrstu þrjú fyrstu sætin í landsflokknum á morgunæfingunni í gær. Varð að vísu fyrir bilun í bensíndælu um sama leyti og hætti að rigna og bættu ökumenn allir nema hann tíma sína þegar þeir gátu ekið á þurrdekkjum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is