Hamilton á ráspól í Montreal

Hamilton ánægður í Montreal.
Hamilton ánægður í Montreal. ap

Lewis Hamilton hjá McLaren var í þessu að vinna ráspól kanadíska kappakstursins í Montreal eftir spennandi keppni við fjölda ökuþóra. Annar varð Robert Kubica á BMW, þriðji Kimi Räikkönen á Ferrari og fjórði Fernando Alonso á Renault.

Hamilton náði ótrúlegum lokahring og var þá sex tíundu úr sekúndu fljótari í förum en næstu menn. Rétt áður hafði Kubica skotist úr fimmta sæti í það fyrsta.  

Með árangrinum bindur Hamilton enda á sigurgöngu Ferrari í tímatökunum en ökumenn þess hafa unnið hvern ráspólinn af öðrum undanfarið.

Nico Rosberg á Williams var lengi með í keppninni og gerði sér lítið fyrir á lokahringnum að vinna sig upp í fimmta sætið og fram úr Felipe Massa hjá Ferrari, sem ræsir af sjötta rásstað á morgun.

Lewis Hamilton vann sinn fyrsta ráspól í formúlu-1 í Montreal í fyrra og jafnframt sinn fyrsta mótssigur. Virðist hann líklegur til að halda upp á þau tímamót með því að vinna sömu afrek í ár og í fyrra, þ.e. ráspól og sigur.

Alonso hefur tekist að bæta Renaultinn mjög og var aðeins 11 þúsundustu úr sekúndu á eftir Räikkönen. Munar þar mestu um annað tímatökusvæðið af þremur en þar var Alonso með fjórum tíundu úr sekúndu lengur í förum.

Athygli vekur að Heikki Kovalainen og Nick Heidfeld voru fjarri hinum hraðskreiðu félögum sínum, Hamilton og Kubica. Varð Kovlainen sjöundi og Heidfeld áttundi.

Rubens Barrichello hjá Honda komst í fyrsta sinn á árinu í þriðju lotu tímatöku. Hefur hann keppni í níunda sæti, en Mark Webber á Red Bull ók ekki í lokalotunni vegna skemmda sem urðu á bíl hans í lok annarrar lotu.

Í fyrsta sinn á árinu komst Jarno Trulli hjá Toyota  ekki í þriðju lotu tímatökunnar. Hann snarsneri bílnum einu sinni í fyrstu lotu og tvisvar í þeirri næstu og varð fjórtándi. Vegna þessara vandræða Trulli varð liðsfélagi hans Timo Glock í fyrsta sinn framar, en hann varð ellefti.

Gírkassi bilaði hjá Jenson Button á Honda í byrjun fyrstu umferðar svo hann gat ekki ekið nema einn tímahring og varð nítjándi, einu sæti á undan Sebastian Vettel á Toro Rosso sem tók ekki þátt vegna tjóns á bíl hans á æfingu fyrr í dag.

Niðurstaða tímatökunnar varð sem hér segir, og þar með rásröð morgundagsins:

Röð Ökuþór Bíll Lota 1 Lota 2 Lota 3 Hri.
1. Hamilton McLaren 1:16.909 1:17.034 1:17.886 19
2. Kubica BMW 1:17.471 1:17.679 1:18.498 14
3. Räikkönen Ferrari 1:17.301 1:17.364 1:18.735 23
4. Alonso Renault 1:17.415 1:17.488 1:18.746 22
5. Rosberg Williams 1:17.991 1:17.891 1:18.844 26
6. Massa Ferrari 1:17.231 1:17.353 1:19.048 23
7. Kovalainen McLaren 1:17.287 1:17.684 1:19.089 25
8. Heidfeld BMW 1:18.082 1:17.781 1:19.633 21
9. Barrichello Honda 1:18.256 1:18.020 1:20.848 25
10. Webber Red Bull 1:17.582 1:17.523 15
11. Glock Toyota 1:18.321 1:18.031 19
12. Nakajima Williams 1:17.638 1:18.062 19
13. Coulthard Red Bull 1:18.168 1:18.238 19
14. Trulli Toyota 1:18.039 1:18.327 16
15. Piquet Renault 1:18.505 1:18.393 18
16. Bourdais Toro Rosso 1:18.916 10
17. Sutil Force India 1:19.108 12
18. Fisichella Force India 1:19.165 12
19. Button Honda 1:23.565 3
20. Vettel Toro Rosso
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert