Kristján Einar fimmti

Kristján Einar í Snetterton í dag. stækka

Kristján Einar í Snetterton í dag. fota

Kristján Einar Kristjánsson varð fimmti í landsflokknum í seinni kappakstri formúlu-3 sem fram fór í Snetterton í Englandi í dag. Viktor Þór Jensen féll úr leik í alþjóðaflokknum.

Kristján Einar varð aðeins 10 sekúndum frá þriðja sætinu í kappakstrinum.  Hann vann sér inn stig í báðum mótum og er nú jafn öðrum keppanda í sjötta til sjöunda sæti í keppni ökuþóra með 62 stig eftir 10 mót. Alls hafa 11 ökumenn unnið stig í breska landsflokknum.

Írski ökumaðurinn Michael Devaney, sem braut blað í sögu keppninnar með sigri í fyrri kappakstri dagsins, vann einnig þann seinni.

Í fyrra mótinu vann hann sinn fyrsta formúlu-3 sigur, fyrsta mótssigur Ultimate-liðsins og fyrsta sigur Mygale-bíls í hinni bresku formúlu-3 en um er að ræða franskan keppnisbíl.

Ultimate-liðið keppir í fleiri kappakstursflokkum og hefur stór áform til framtíðar. Stefnir að þátttöku í formúlu-1 þegar á næsta ári. Undirbúningur þess er langt á veg kominn og stendur og fellur þátttaka liðsins með niðurstöðum í nýjum samningi um keppni í formúlu-1, svonefdu Concorde-samkomulagi.

Heimasíða Mygale bílsmiðjunnar

Írinn Devaney sigrar í Snetterton á Mygale-bílnum franska

Írinn Devaney sigrar í Snetterton á Mygale-bílnum franska fota

Kristján Einar, á bíl 54, í harðri keppni í Snetterton.

Kristján Einar, á bíl 54, í harðri keppni í Snetterton.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is