Räikkönen vinnur 200. ráspól Ferrariliðsins

Räikkönen á fleygi ferð í Magny-Cours.
Räikkönen á fleygi ferð í Magny-Cours. ap

Kimi Räikkönen á Ferrari er í óskastöðu til að endurtaka afrek sitt frá í fyrra og sigra í franska kappakstrinum þar sem hann vann ráspólinn rétt í þessu eftir jafna og spennandi keppni. Annar varð liðsfélagi hans Felipe Massa, þriðji Lewis Hamilton á McLaren og fjórði Fernando Alonso á Renault.

Þar sem Hamilton færist aftur á 13. rásstað vegna refsingar frá í síðasta móti fær Alonso þriðja rásstaðinn. Við hlið hans verður Jarno Trulli á Toyota sem náði fimmta sætinu þrátt fyrir að fyrri tímatilraunin í lokalotunni færi forgörðum er hann snarsneri bílnum.

Á þriðju rásröð verða Heikki Kovalainen á McLaren og Robert Kubica á BMW og þeirri fjórðu Red Bull-félagarnir Mark Webber og David Coulthard. 

Athygli vekur eftir sigurför BMW-liðsins til Montreal fyrir hálfum mánuði, að Nick Heidfeld komst ekki áfram í lokalotuna í tímatökunum nú. Minnstu munaði að hann sæti eftir í fyrstu umferð en hann varð á endanum tólfti.

Tímatökurnar í Magny-Cours voru jafnari en oft áður og baráttan um allt að þúsundustu brota úr sekúndu.

Árangur Räikkönen markar tímamót fyrir Ferrariliðið því þetta er 200. ráspóll liðsins frá upphafi vega í formúlu-1. 

Niðurstöður tímatökunnar urðu annars sem hér segir:

Röð Ökuþór Bíll Lota 1 Lota 2 Lota 3 Hri.
1. Räikkönen Ferrari 1:15.133 1:15.161 1:16.449 16
2. Massa Ferrari 1:15.024 1:15.041 1:16.490 17
3. Hamilton McLaren 1:15.634 1:15.293 1:16.693 15
4. Alonso Renault 1:15.754 1:15.483 1:16.840 18
5. Trulli Toyota 1:15.521 1:15.362 1:16.920 19
6. Kovalainen McLaren 1:15.965 1:15.639 1:16.944 18
7. Kubica BMW 1:15.687 1:15.723 1:17.037 19
8. Webber Red Bull 1:16.020 1:15.488 1:17.233 18
9. Coulthard Red Bull 1:15.802 1:15.654 1:17.426 19
10. Glock Toyota 1:15.727 1:15.558 1:17.596 24
11. Piquet Renault 1:15.848 1:15.770 12
12. Heidfeld BMW 1:16.006 1:15.786 14
13. Vettel Toro Rosso 1:15.918 1:15.816 17
14. Bourdais Toro Rosso 1:16.072 1:16.045 17
15. Rosberg Williams 1:16.085 1:16.235 12
16. Nakajima Williams 1:16.243 9
17. Button Honda 1:16.306 9
18. Barrichello Honda 1:16.330 6
19. Fisichella Force India 1:16.971 10
20. Sutil Force India 1:17.053 9
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert