Viktor Þór og Kristján Einar keppa í Thruxton

Viktor Þór í tímatökunum í Thruxton í dag. stækka

Viktor Þór í tímatökunum í Thruxton í dag. mbl.is/foma

Viktor Þór Jensen og Kristján Einar Kristjánsson verða í nágrenni hvors annars á rásmarki tveggja móta sem fram fara í  formúlu-3 í Thruxtonbrautinni í Englandi á morgun, sunnudag.

Í fyrri kappakstrinum verður Viktor Þór á 22. rásstað og Kristján Einar á þeim 24. Viktor Þór verður á sama rásstað í seinna mótinu en Kristján Einar einu sæti framar, eða því 23.

Viktor Þór virðist ekki hafa náð fullum tökum á bíl sínum því hann varð 18. og síðastur keppenda í alþjóðaflokknum í tímatökum beggja mótanna. Geldur þess ef til vill að hafa misst af nokkrum fyrstu mótanna og fjölda æfinga.

Í landsflokknum leggur Kristján Einar af stað sjötti af af átta í  fyrra mótinu en fimmti í seinna mótinu. Lið hans, Carlin, átti þrjá fyrstu í fyrri tímatökunum og tvo fyrstu í þeim seinni.

Ökumenn fóru beint í tímatökur í dag, fengu engar æfingar á undan svo sem venja er.

Thruxton-brautin er sú hraðasta á keppnistímabili formúlu-3 og því getur dekkjaslit ráðið miklu um árangur, bæði í tímatökum og keppni.

Keppnistímabil hinnar bresku formúlu 3 verður hálfnað eftir fyrra mót morgundagsins. Ólíkt fyrri árum er enn ekki hægt að spá fyrir um úrslitin, hvorki í landsflokknum þar sem nokkuð hefur saxast á forskot Andy Meyrick liðsfélaga Kristjáns Einars í undanförnum mótum.

Og ekki heldur í alþjóðaflokknum þar sem nýr maður hefur setið í efsta sæti stigalistans eftir nánast hvert einasta mót.

Tímamót hjá Kristjáni Einari

Um helgina eru tímamót hjá Kristjáni Einari því nákvæmlega eitt ár er liðið frá því að hann ók formúlubíl í fyrsta sinn. Það var á Pembrey brautinni í Wales þegar Carlin Motorsport prófaði hann fyrst í formúlu BMW bíl.

„Þetta ár hefur verið ævintýri líkast og mér kom aldrei til hugar í litla bílnum á Pembrey, að ári seinna væri ég kominn upp um marga flokka og að keppa í formúlu-3,“ segir Kristján Einar.

„Ekkert af þessu hefði gerst ætti ég ekki frábæra fjölskyldu, einstaka bakhjarla og ótrúlegt lið því þetta ferli snýst um svo margt fleira en það að keyra hratt,“ bætir hann við.

Hraðasta braut Bretlands

Kristján Einar sagði helgina leggjast vel í sig. „Ég hef einu sinni æft á þessari braut og það reyndar í úrhellisrigningu. Thruxton er einstök braut og maður heyrir þessa reyndu tæknistjóra hér tala um að það sé í rauninni engin önnur keppnisbraut í heiminum sem líkist henni. Þetta er hraðasta braut Bretlands, bílarnir eru hér á í kringum 240 km, það er enginn kröpp beygja en heldur enginn beinn kafli. Meira að segja startið er í aflíðandi beygju.“

Kristján Einar yfirvegaður í Thruxton í dag.

Kristján Einar yfirvegaður í Thruxton í dag.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is