Kristján Einar fjórði í fyrri kappakstrinum
Kristján Einar Kristjánsson varð fjórði í fyrri kappakstri dagsins í formúlu-3 í Thruxton í Englandi. Vann hann sig fram úr tveimur keppinautum í landsflokki þar sem hann hóf keppni í sjötta sæti.
„Það borgaði sig að spara dekkin í tímatökunni í gær,“ sagði Kristján Einar eftir fyrri keppnina í dag. „Ég ætlaði mér að sjálfsögðu á pall og fjórða sætið er svolítið súrsætt. Að sjálfsögðu er ég glaður að hafa unnið mig upp um tvö sæti, en frá fjórða sætinu er svo stutt í það þriðja . . .“
Kristján Einar ók mun hraðar fyrri hluta keppninnar og kvaðst hafa fundið mjög mikinn mun á bílnum eftir því sem á leið. „Hér verða allir bílar erfiðari eftir því sem líður á keppnina ef brautin er þurr og það voru hér bílar sem luku keppni á nánast engu gúmmíi.
Seinni kappaksturinn hefst kl. 15:05 að íslenskum tíma, en henni var seinkað vegna slyss sem varð í GT sportbílakappakstrinum sem formúla 3 deilir helginni með.






