Kristján Einar keppti í Spa

Kristján Einar í Spa. Að baki honum Rauðavatnsbeygjan fræga (Eau Rouge). stækka

Kristján Einar í Spa. Að baki honum Rauðavatnsbeygjan fræga (Eau Rouge).

Kristján Einar Kristjánsson sætti mótlæti er hann keppti í dag í formúlu-3 í hinni frægu Spa Francorchamps braut í Belgíu. Ekið var aftan á hann í seinni kappakstrinum svo hann féll að lokum úr leik.

Framfjöðrunin í bíl Kristjáns Einars skemmdist er hann fékk bíl á sig í fyrstu beygju hringsins. Bíllinn hélst þó á brautinni við samstuðið og Kristján streittist við að halda áfram.

Á fjórða hring festist hins vegar stýrið endanlega og hann flaug útaf. Bíllinn staðnæmdist á grasbala og sakaði hvorki bílstjóra eða bíl frekar.

„Þetta voru hrikaleg vonbrigði og erfitt að sætta sig við að ákeyrslu í sömu beygju á fyrsta hring í báðum keppnunum,“ segir Kristján Einar á heimasíðu sinni.

„Á þriðja hring missti ég bílinn út af í Pouhon u-beygjunni en kom honum aftur inn á brautina. Nokkrum sekúndum seinna brotnaði fjöðrunin endanlega þegar ég bremsaði fyrir Busstop s-beygjurnar. Stýrið festist og ég ók beint út úr braut," sagði Kristján Einar ennfremur.

Fyrsta beygjan reyndist mörgum dýrkeypt og samtals sjö bílar sem luku ekki keppni vegna óhappa þar.

Í fyrra mótinu í dag varð Kristján Einar sjötti í landsflokki. Hann átti góða ræsingu, tók fram úr sex bílum á fyrstu metrunum.

Í beygju á fyrsta hring var hins vegar ekið aftan á hann, bíllinn snérist út úr braut og dýrmætar sekúndur töpuðist við að koma honum aftur inn á brautina.

„Eftir þetta náði ég aldrei að minnka bilið í næsta bíl nóg til að fá kjölsog sem er eina leiðin til að taka framúr á beinu köflunum hér,“ sagði Kristján Einar.

Hann reyndi þó til þrautar og setti í leiðinni langhraðasta tíma landsflokksbílanna á einu af þremur tímasvæðum brautarinnar. Og var raunar næst fljótastur allra bíla úr báðum flokkum á þeim kafla, mældist á 246,8 km hraða.

Viktor Þór Jensen var skráður til leiks í mótinu en kom ekki á vettvang. Lið hans mætti þó til keppni og tefldi fram þýskum ökuþór í landsflokki sem ekki hefur keppt í undanförnum sex mótum.

Myndasyrpa: Kristján Einar á ferð í Spa Francorchamps í Belgíu

Kristján Einar Kristjánsson keppti nú um verslunarmannahelgina í hinni frægu kappakstursbraut Spa Francorchamps í Belgíu.

Birtingardagur: Laugardaginn, 2. ágúst 2008

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is