Fékk aksturstölvuna næstum í kjöltuna

Kristján Einar í Silverstone í dag. stækka

Kristján Einar í Silverstone í dag.

Kristján Einar Kristjánsson varð fyrir þeirri einkennilegu upplifun, að aksturstölva bílsins losnaði þegar skammt var eftir af fyrri kappakstri dagsins í formúlu-3 í Silverstone.

„Ótrúlegustu hlutir gerast í kappakstri en að aksturstölvan losni, detti inn i stýrið og festist hljómar fremur eins og atriði í teiknimynd en í raunveruleikanum. En þetta kom fyrir í kappakstrinum í morgun og ég þurfti nánast áfallahjálp þegar það gerðist,“ sagði Matt Ogle, tæknistjóri Kristjáns Einars.

Hann átti ekki annarra kosta völ en dóla heim í bílskúr og sætta sig við sjöunda og síðasta sæti þeirra sem í mark komu í landsflokknum, en áttundi keppandinn var áður fallinn úr leik. Hann varð einnig sjöundi í flokknum í seinna mótinu í dag.

Aðeins ein æfing var á brautinni i gær fyrir keppni og Kristján Einar missti af henni vegna vandræða í bílnum sem ekki náðist að leysa áður en henni lauk. Hann notaði því fyrri tímatökuna til að vinna með liðinu í að fínstilla bílinn fyrir brautina og varð fyrir vikið aftastur á ráslínunni.

Það kom ekki að sök því líkt og á Spa átti hann öflugt start og keyrði sig upp hópinn á fyrstu metrunum. Um skeið var hann kominn upp í fjórða sæti í flokknum er tölvan losnaði.  Við það festist stýrið og Kristján Einar fór út úr brautinni í beygju. Losaði hann tölvuna út stýrinu og lauk keppni með „laugardagsbíltúr um Silverstone“, eins og hann lýsti hring í aksturstölvulausum bílnum. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is