Kristján Einar fær hvatningu þúsunda Bandaríkjamanna

Kristján Einar í keppni í formúlu-3 í Bretlandi. stækka

Kristján Einar í keppni í formúlu-3 í Bretlandi.

Kristján Einar Kristjánsson hefur orðið fyrir barðinu á heimskreppunni því bandarískt styrktarfyrirtæki hans hefur kippt að sér höndum. Af þeim sökum verður hann ekki meðal keppenda í Champcar Atlantic-mótaröðinni, a.m.k. ekki fyrstu keppnishelgina.

Kristján Einar fór til Bandaríkjanna í febrúar til að ganga frá samningum og hefja keppni í Atlantic-mótaröðinni sem hefst nú í marsmánuði. En eins og margir íþróttamenn aðrir hefur kreppan sett stein í götu hans.

Bandarísk fyrirtæki sem hefur verið stuðningsaðili hans og kostað undirbúninginn varð í síðustu viku að hverfa frá frekari áformum vegna efnahagskreppunnar.

„Við sjáum þetta gerast út um allt,“ segir Kristján Einar sem er staddur í Bandaríkjunum. „Það kepptu 32 í hinni bresku formúlu-3 í fyrra og núna eru 14 skráðir. Í Atlantics mótaröðinni voru 30 í fyrra en núna vonast menn til að ná 17 bílum en samt er þetta mótaröðin með veglegustu verðlaunin,“ bætir Kristján Einar við.

En hann hefur fengið stuðning úr óvæntri átt. Bílavefurinn jalopnik.com þótti miður að hann skyldi ekki geta fjármagnað keppni með Newman-Wachs liðinu. Undir áskoruninni „Jalopnik tekur að sér ökuþór“ segir vefurinn frá honum í löngu og ítarlegu máli og hvetur lesendur til að styðja hann svo hann geti keppt.

Í framhaldinu var sett upp stuðningssíða á facebook sl. fimmtudag undir yfirskriftinni „I'm supporting Kristjan Einar“ og hafa yfir þúsund manns skráð sig í stuðningshópinn. „Þetta eru frábær viðbrögð og fjöldinn skiptir gríðarlegu máli í leit að nýjum samstarfsaðilum,“ segir  Kristján Einar. 

Yfir þúsund lesendur vefjarins hafa lýst stuðningi við Kristján Einar og markmið aðstandenda síðunnar er að sá hópir stækki um annað eins. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is