Nakajima setti í fluggír

Nakajima var fljótur í förum í dag á Williamsbílnum. stækka

Nakajima var fljótur í förum í dag á Williamsbílnum. allianz

Kazuki Nakajima setti besta brautartíma vikunnar í Jerez á Spáni í dag er Williams og McLaren luku þar undirbúningi sínum undir komandi keppnistíð, sem hefst í næstu viku í Ástralíu.

Tími Nakajima, 1:17.494 mínútur, var tæplega fjórum sekúndubrotum betri en fyrra æfingamet, en það setti Jenson Button hjá Brawn GP í fyrradag. Ók hann alls 102 hringi í dag.

Hinn mikli hraði Williamsbílsins eykur enn á óvissuna um innbyrðis stöðu liða við vertíðarupphaf.

Heikki Kovalainen ók 84 hringi fyrir McLaren og bætti tímann frá í gær, en þá setti hann langbesta tíma sem silfurörin hafði náð í Jerez. Besti hringur hans í dag mældist betri, eða 1:17,946 mín., en tími hans í gær var 1:18,202. Til samanburðar ók Button á 1:17,884 í fyrradag, sem er hálfum tíunda úr sekúndu betri en Kovalainen gerði í dag.

Eftir áberandi hraðaskort undanfarnar vikur hefur McLaren síðustu daga prófað ýmsar nýjungar til að bæta loftafl bílsins. Þykja miklar framfarir Kovalainen í gær og dag og Lewis Hamilton næstu tvo daga á undan benda til að umbæturnar séu að skila sér í auknum bílhraða.

Kovalainen hefur kreist aukahraða úr silfurör McLaren í dag og gær.

Kovalainen hefur kreist aukahraða úr silfurör McLaren í dag og gær. mbl.is/mclarenf1

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is