Liðsfélagi Kristjáns Einars varamaður hjá Red Bull

Hartley sigri hrósandi á verðlaunapalli í Spa í Belgíu í fyrra. stækka

Hartley sigri hrósandi á verðlaunapalli í Spa í Belgíu í fyrra.

Nýsjálenski ökuþórinn Brendon Hartley hefur verið ráðinn sem vara- og reynsluökumaður Red Bull liðsins. Tekur hann við því hlutverki af David Coulthard. Hartley var liðsfélagi Kristjáns Einars Kristjánssonar hjá Carlinliðinu í formúlu-3 í fyrra.

Hartley, sem er aðeins 19 ára,  fékk svonefnt ofurskírteini í vikunni en það er forsenda þátttöku í formúlu-1.  Hann varð í þriðja sæti í keppni ökuþóra í alþjóðaflokknum í hinni bresku formúlu-3 í fyrra. 

Vegna banns við reynsluakstri er ólíklegt að hann fái mikið að spreyta sig í bíl Red Bull. Verður samt hluti af liðinu og mun við það öðlast nýja þekkingu.

Hartley mun keppa fyrir Carlin í Evrópumótaröðinni í formúlu-3 og einnig í Renaultformúlunni svonefndu.  Keppir í henni um helgina í Spa í Belgíu og Evrópuröðinni í F-3 eftir hálfan mánuð. Í millitíðinni verður hann liðsmaður hjá Red Bull í Spánarkappaksturinn í Barcelona.


Hartley fremstur í flokki í formúlu-3 í Thruxton í Bretlandi í fyrra.

Hartley fremstur í flokki í formúlu-3 í Thruxton í Bretlandi í fyrra. mbl.is/brendonhartleymotorsports

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is