Dómaraúrskurður færði Kristján Einar í 4. sæti

Kristján Einar Kristjánsson á fullri ferð. stækka

Kristján Einar Kristjánsson á fullri ferð. mbl.is

Dómaraúrskurður FIA frá Opnu Evrópsku Formúlu 3 mótaröðinni á Spa um síðustu helgi breytti röð efstu manna í keppninni um Copa bikarinn, sem Kristján Einar Kristjánsson keppir í. 

"FIA dómararnir eru mjög nákvæmir og ég átti frekar von á þessari niðurstöðu, því þótt ég hafi ekki átt aðild að atvikinu sem dæmt var á þá gerðist það beint fyrir framan mig í brautinni og var klárlega gróft brot," sagði Kristján Einar.

Atvikið varð undir lok kappakstursins þegar Bruno Palli frá Venezuela ók fyrir spænska keppandann Edgar Fernandez með þeim afleiðingum að Fernandez endaði utanbrautar með stórskemmdan bíl. Niðurstaðan færði Kristján Einar úr fimmta sæti í það fjórða.

Opna Evrópska mótaröðin í Formúlu 3 heldur nú til Bretlands, en næstu umferðir verða á laugardag og sunnudag á Donnington brautinni og Kristján Einar mætir þangað í æfingar og undirbúning nk.  fimmtudag.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is