Loeb ekki á leið í formúluna

Alvörugefnir á svip ræðast Loeb og Bourdais við í Mónakó. stækka

Alvörugefnir á svip ræðast Loeb og Bourdais við í Mónakó. mbl.is/tororosso

Sebastien Loeb mun ekki keppa í formúlu-1 í ár og líklega heldur ekki það næsta, segir í yfirlýsingu frá Citroenliðinu í HM í ralli. Tilefnið er frétt franska íþróttadagblaðsins l'Equipe um að hann myndi taka við af Sebastien Bourdais sem ökuþór hjá Toro Rosso ef það byðist.

Citroen segir Loeb hafa einungis eitt markmið í ár, og það sé að verja bæði titil ökumanna og bílsmiða í HM í ralli. „Sebastien Loeb er bundinn samningi við Citroen til vertíðarloka og samningaviðræður um áframhald keppni á næsta ári eru á lokastigi,“ segir Citroen.

Loeb er sigursælasti ökuþór í sögu HM í ralli. Hann segist undrandi á þeirri athygli sem ummæli hans í l'Equipe hlutu. Segir hann þau bæði ekki vera alveg rétt eftir höfð og slitin úr samhengi. Hann segir rallið hafa forgang. „En hvernig myndir þú búast við að ökuþór brygðist við ef hann væri spurður hvort hann vildi aka formúlu-1 bíl?

Hann segist helga rallinu krafta sína óskorið og takmarkið sé að vinna báða titla rallsins aftur í ár sem undanfarin ár.

Olivier Quesnel liðsstjóri Citroen segir að Loeb yrði frjálst að keppa í formúlu-1 eftir að ralltímabilinu væri lokið, ef slíkt boð bærist honum. HM í ralli lýkur í Wales í lok október. Verður þá enn eftir eitt mót í formúlu-1, í Abu Dhabi við Persaflóa.

Loeb er sigursælasti rallþór sögunnar.

Loeb er sigursælasti rallþór sögunnar. reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is