Verður Alguersuari yngsti ökuþór formúlu-1?
Spænski táningurinn Jaime Alguersuari, sem nýlega gerðist vara-ökumaður hjá Toro Rosso í formúlu-1 kappakstrinum, gæti keppt fyrir hönd liðsins í Ungverjalandi í næsta kappakstri, 24. -26. júlí, þar sem aðalökuþór liðsins, Sebastien Bourdais, er hættur hjá liðinu.
„Á sínu seinna ári með liðinu, hefur samvinnan með Sebastien ekki staðið undir væntingum,“ sagði liðsstjóri Toro Rosso, Franz Tost.
Keppi Alguersuari í Búdapest, verður hann 19 ára og 125 daga gamall, en sá yngsti til þessa í formúlu-1 kappakstrinum er Mike Thackwell frá Nýja-Sjálandi, sem keppti fyrir Tyrrell árið 1980 í Kanada, þá 19 ára og 183 daga gamall.
Liðsfélagi Kristjáns Einars
Til gamans má geta þess, að Jaimie Alguersuari var liðsfélagi Kristjáns Einars Kristjánssonar í hinni bresku formúlu-3 fyrra. Kepptu báðir með Carlin-liðinu. Alguersuari varð meistari í greininni og sem slíkur bæði fyrsti Spánverjinn til að afreka það og einnig yngsti keppandinn frá upphafi til að vinna mótaröðina.






