Toro Rosso saknar Vettel

Vettel kátur á palli í Monza. stækka

Vettel kátur á palli í Monza. reuters

Toro Rosso liðið líður fyrir burtför Sebastians Vettel til móðurliðs Red Bull. Hefur frammistaða ítalska smáliðsins verið mun lakari í ár en í fyrra er Vettel var þar ökumaður.

Brottför Vettels virðist hafa bitnað harkalega á Toro Rosso. En forsvarsmenn þess binda þó vonir við að nýliðinn Sebastien Buemi eigi eftir að skila því svipuðum árangri í framtíðinni og Vettel gerði í fyrra.

Keppnisbíllinn, STR4, hefur reynst mun lakari en bílar annarra liða og liðið hefur ekki haft fjármuni til að leggja í mikla þróunarvinnu og endurbætur á honum.

Hermt er að bíllinn sé gallaður í grunninn en tæknistjórinn Giorgio Ascanelli segir samt, að ökumaður bílsins skipti miklu máli um árangur. Segir hann að framfarir liðsins á seinni hluta síðasta árs sé vegna framlags Vettels. Hann braut blað í sögu liðsins með því að vinna fyrsta sigur þess frá upphafi. Það gerði hann í ítalska kappakstrinum í Monza í september í fyrra.

Ascanaelli segir Vettel hafa tekið stórstígum framförum meðan hann var hjá Toro Rosso og verið fljótur að átta sig á hvort breytingar á bílnum skiluðu tilætluðum árangri.

Þar sem Sebastien Bourdais hefur verið settur af er Buemi orðinn aðal ökuþór þess, en hann á aðeins níu mót að baki í formúlu-1 og féll úr leik í fjórum þeirra mjög snemma. Þrátt fyrir reynsluleysið er við miklu búist af honum þegar fram líða stundir.

Orðrómur er á kreiki þess efnis að tvítugur spænskur ökumaður, Jaime Alguersuari, verði ráðinn til að keppa fyrir Toro Rosso í stað Bourdais. Hann varð meistari í hinni bresku formúlu-3 í fyrra.


Vettel fagnar á innhring í Monza.

Vettel fagnar á innhring í Monza. reuters

Vettel á leið til sigurs í Monza.

Vettel á leið til sigurs í Monza. reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is