Toro Rosso staðfestir þátttöku Alguersuari

Alguersuari (t.h.) og Kristján Einar (t.v.) voru liðsfélagar í fyrra. stækka

Alguersuari (t.h.) og Kristján Einar (t.v.) voru liðsfélagar í fyrra.

Toro Rosso liðið staðfesti í morgun, að spæsnki ökuþórinn  Jaime Alguersuari muni keppa í ungverska kappakstrinum. Verður hann yngsti ökuþór sögunnar í formúlu-1.

Alguersuari tekur við af Sebastien Bourdais sem leystur var frá störfum í síðustu viku. Hann er 19 ára og 125 daga gamall, en sá yngsti til þessa í formúlu-1 kappakstrinum er Mike Thackwell frá Nýja-Sjálandi, sem keppti fyrir Tyrrell árið 1980 í Kanada, þá 19 ára og 183 daga gamall.

Liðsfélagi Kristjáns Einars 

Til gamans má geta þess, að Jaimie Alguersuari var liðsfélagi Kristjáns Einars Kristjánssonar í hinni bresku formúlu-3 fyrra. Kepptu báðir með  Carlin-liðinu. Alguersuari varð meistari í greininni og sem slíkur bæði fyrsti Spánverjinn til að afreka það og einnig yngsti keppandinn frá upphafi til að vinna mótaröðina.

Yngstu ökumenn sögunnar

Alguersuari er eins og framan segir yngsti ökumaðurinn til að keppa í formúlu-1. Hann verður 19 ára, fjögurra mánaða og fimm daga gamall í Búdapest komandi sunnudag.

Tíu yngstu ökuþórar til að hefja keppni eru sem hér segir:

Röð aldur ökumaður 1sta keppni
1. 19 04 05 Jaime Alguersuari 2009 Ungverjalandi
2. 19 05 29 Mike Thackwell 1980 Kanada
3. 19 06 27 Ricardo Rodriguez 1961 Ítalíu
4. 19 07 03 Fernando Alonso 2001 Ástralíu
5. 19 10 14 Esteban Tuero 1998 Ástralíu
6. 19 10 20 Chris Amon 1963 Belgíu
7. 19 11 14 Sebastian Vettel 2007 Bandaríkjunum
8. 20 01 22 Eddie Cheever 1978 Suður-Afríku
9. 20 01 22 Jenson Button 2000 Ástralíu
10. 20 02 12 Tarso Marques 1996 Brasilíu
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is