Alonso segir Alguersuari tilbúinn fyrir formúlu-1

Alguersuari í stjórnklefa bíls Red Bull. stækka

Alguersuari í stjórnklefa bíls Red Bull. mbl.is/tororosso

Fernando Alonso, fyrrverandi heimsmeistari í formúlu-1, segir landa sinn og nýliða, Jaime Alguersuari, vera tilbúinn til keppni í íþróttinni. Hann verður yngsti ökuþór til að hefja keppni í formúlu-1 í Búdapest á sunnudag, 19 ára og fjögurra mánaða.

Alonso var sjálfur rúmra 19 ára er hann hóf keppni hjá Minardi árið 2001og því vart annars að vænta en hann stæði með Alguersuari sem kemur til leiks með enn minni reynslu af formúlu-1 bíl en Alonso á sínum tíma.

„Þess sjást merki að hann sé mjög fær ökuþór. Ef menn komast í formúlu-1 þá er það vegna þess að menn eru góðir ökumenn og því skyldu menn engan kvíðboga bera,“ sagði Alonso við fréttastofuna EFE.

„Ég er hlynntur því að menn byrji eins ungir og hægt er. Ég hef óskað honum til hamingju og óska honum frábærrar framtíðar,“ bætti meistarinn fyrrverandi við.

Eina reynsla Alguersuari af formúlu-1 bíl eru tvær bílprófanir á flugbraut þar sem einungis var ekið fram og til baka eftir þrábeinni brautinni.


Alguersuari fylgist með á stjórnborði hjá Red Bull liðinu.

Alguersuari fylgist með á stjórnborði hjá Red Bull liðinu. mbl.is/tororosso

Alonso segir Alugersuari tilbúinn til keppni í formúlu-1.

Alonso segir Alugersuari tilbúinn til keppni í formúlu-1. mbl.is/tororosso

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is