Bourdais sættist við Toro Rosso

Bourdais (t.h.) og Nicolas Todt. stækka

Bourdais (t.h.) og Nicolas Todt. mbl.is/tororossof1

Franski ökuþórinn Sebastien Bourdais höfðar ekki mál á hendur Toro Rosso fyrir samningsrof og ólögmætan brottrekstur. Hefur hann náð fullum sáttum við liðið sem vék honum úr starfi eftir þýska kappaksturinn.

Franska íþróttadagblaðið L'Equipe hefur þetta eftir umboðsmanni Bourdais,  Nicolas Todt. Bourdais var vikið úr starfi fjórum dögum eftir kappaksturinn í Nürburgring. Í stað hans var ráðinn spænskur táningur, Jaime Alguersuari.

Bourdais fól þegar í stað lögmönnum sínum að skoða málið með tilliti til málshöfðunar.

Todt segir hins vegar að viku eftir þýska kappaksturinn hafi fullar sættir tekist. "Þeir vissu að þeir voru með tapað mál í höndunum," segir Todt.

Bourdais sagði að hann myndi freista þess frekar að halda velli á vettvangi formúlu-1. Honum mun þó hafa verið boðið starf í bandaríska IndyCar-kappakstrinum. Honum gekk vel í keppni í Bandaríkjunum áður en hann hvarf til starfa í formúlu-1 og varð m.a. fjórum sinnum meistari þar í landi.

Bourdais á ferð á Toro Rosso-bíl.

Bourdais á ferð á Toro Rosso-bíl. mbl.is/tororossof1

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Föstudaginn 10. febrúar

Fimmtudaginn 9. febrúar

Miðvikudaginn 8. febrúar

Þriðjudaginn 7. febrúar

Mánudaginn 6. febrúar

Sunnudaginn 5. febrúar

Laugardaginn 4. febrúar

Föstudaginn 3. febrúar

Fimmtudaginn 2. febrúar

Miðvikudaginn 1. febrúar

Þriðjudaginn 31. janúar

Mánudaginn 30. janúar

Sunnudaginn 29. janúar

Laugardaginn 28. janúar

Föstudaginn 27. janúar

Fimmtudaginn 26. janúar

Miðvikudaginn 25. janúar

Þriðjudaginn 24. janúar

Mánudaginn 23. janúar

Föstudaginn 20. janúar

Fimmtudaginn 19. janúar

Miðvikudaginn 18. janúar

Þriðjudaginn 17. janúar

Mánudaginn 16. janúar

Laugardaginn 14. janúar

Föstudaginn 13. janúar

Miðvikudaginn 11. janúar

Þriðjudaginn 10. janúar

Mánudaginn 9. janúar

Föstudaginn 6. janúar


finnur.is