Bourdais sagt upp með sms

Bourdais á bíl Toro Rosso. stækka

Bourdais á bíl Toro Rosso. reuters

Franski ökuþórinn Sebastien Bourdais sakar fyrrverandi vinnuveitiendur sína hjá Toro Rosso um taktleysi með því að tilkynna sér uppsögn með smáskilaboði (sms). Þetta segir Bourdais til marks um skort á „stíl“. 


Bourdais hinum þrítuga var tjáð eftir þýska kappaksturinn í Nürburgring að  þjónustu hans í þágu liðsins væri ekki lengur þörf. Í hans stað var ungur ökumaður á framfæri Red Bull skipaður í sæti hans, Jaime Alguersuari.

„Aðferðin sem notuð var til að losa sig við mig var mjög svekkjandi. Dietrich Mateschitz¨[auðkýfingurinn sem á bæði Red Bull og Toro Rosso] var í Nürburgring en yrti ekki á mig. Hann hringdi ekki heldur. Allt var gert með sms, sem að mínu áliti er enginn stíll yfir,“ segir Bourdais við franska akstursíþróttaritið Autohebdo.  

Í millitíðinni hefur Bourdais sæst við Toro Rosso og stefnir því ekki liðinu fyrir rétt fyrir samningsrof.

Bourdais, sem varð meistari í bandaríska Champ Car kappakstrinum fjögur ár í röð, játar að hann eigi sinn þátt í því að hann náði sér aldrei á strik á hálfri annarri vertíð með Toro Rosso.

Hann segir að keppnisbíll liðsins, sem var sá sami og hjá Red Bull þar til í ár, hafi ekki verið smíðaður með ökumann í huga, heldur hafi það verið undir ökumanni komið að aðlagast honum. „Það var aldrei mín sterka hlið,“ segir Bourdais.


Bourdais átti erfitt með aðlögun að bíl Toro Rosso.

Bourdais átti erfitt með aðlögun að bíl Toro Rosso. ap

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is