BMW þakkar og kveður Kubica

Kubica mun sitja í Renault á næsta ári. stækka

Kubica mun sitja í Renault á næsta ári. TIM CHONG

BMW-liðið hrósaði Roberet Kubica í hástert í dag og þakkaði honum mikið framlag til liðsins á undanförnum þremur árum. Óskaði það honum jafnframt velfarnaðar hjá nýjum vinnuveitanda, Renaultliðinu.

Enn einn langvarandi orðrómurinn af vettvangi formúlu-1 var staðfestur sem sönn saga í dag, er Renault tilkynnti formlega, að Kubica verði ökumaður liðsins á næsta ári í stað Fernando Alonso.

Mario Theissen, liðsstjóri BMW, sagði, að framlag Kubica til sögu BMW yrði ætíð haft í hávegum. Hann vann bæði fyrsta ráspól liðsins og fyrsta sigur þess, árið 2008. Háði hann lengi keppni um heimsmeistaratitil ökumanna í fyrra.

„Robert lék mikilvægt hlutverk fyrir okkur - og við fyrir hann. Hann kom til liðs við okkur árið 2006 sem reynsluökuþór án reynslu af formúlu-1. Og á því ári var hann hækkaður í tign á miðju tímabilinu og gerður að keppnisþór.

Hann olli okkur aldrei vonbrigðum og með fyrsta ráspól okkar í Barein í fyrra og fyrsta sigri okkar sama ár í Kanada markaði hann þátttaskil í sögu liðsins. Við erum þakklát fyrir stöðuga og öfluga frammistöðu og óskum honum velfarnaðar,“ sagði Theissen.

Kubica tók á miðju keppnistímabilinu 2006 við ökumannsstarfi af Jacques Villeneuve. Í aðeins sínu þriðja móti komst hann á verðlaunapall með þriðja sæti í ítalska kappakstrinum í Monza.


BMW kvaddi Kubica með miklu lofi.

BMW kvaddi Kubica með miklu lofi.

Kubica tekur við af Alonso.

Kubica tekur við af Alonso. reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Íþróttir, Formúla 1 — Fleiri fréttir

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Mánudaginn 21. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí

Föstudaginn 11. maí

Fimmtudaginn 10. maí

Miðvikudaginn 9. maí

Þriðjudaginn 8. maí

Mánudaginn 7. maí

Sunnudaginn 6. maí

Laugardaginn 5. maí

Föstudaginn 4. maí

Fimmtudaginn 3. maí

Miðvikudaginn 2. maí

Þriðjudaginn 1. maí

Mánudaginn 30. apríl

Sunnudaginn 29. apríl

Miðvikudaginn 25. apríl


finnur.is